Goðasteinn - 01.12.1964, Page 10
til sín nema einni dóttur, sem lengi bjó með manni sínum i
Fljótshlíð í Rangárvallasýslu.
Um þetta leyti bjuggu í Hraungerði í Álftaveri ung hjón,
Guðrún Einarsdóttir og Stefán Jónsson. Hann kom nokkuð oft
í Höfðann, og man ég hann vel. Honum mætti sú þunga þraut að
verða holdsveikur, og eru mér minnisstæðir hnyklarnir í andliti
hans. En þó var hann furðu glaður, enda léttlyndur að upplagi.
Var oft gaman að heyra, hve vel hann kom fyrir hnyttilegum
spaugsorðum. Þegar verið var að byggja Laugarnesspítalann,
sem var 1898, dreymdi Stefán, að hann var staddur í stóru húsi
með ótal mörgum herbergjum, en útgöngudyr fann hann engar,
og þótti honum í svefninum, að þær myndi hann aldrei finna.
Hann var þá lítið eða ekki farinn að finna til sjúkleika, en þó
hafði hann ótta af draumnum, er vakti grun hans um, að það
ætti fyrir honum að liggja að enda líf sitt í því stóra húsi, sem
hann vissi, að verið var að byggja í Laugarnesi, og skömmu
síðar komu sjúkdómseinkennin í ljós. Ég heyrði um það talað,
hve mikla viðleitni og dugnað Stefán hefði sýnt við að sjá
heimili sínu farborða og eins eftir hann var orðinn veikur. Var
hann vinsæll, og hörmuðu flestir hlutskipti hans. Urðu því margir
til að rétta honum hjálparhönd. Ég held hann hafi farið alfarinn
á holdsveikraspítalann 1904. Þá kom hann í Höfðann. í síðasta
sinn til að kveðja. Var hann furðu hress og tók hlutskipti sínu
mcð mikilli hugprýði. Foreldrar mínir gáfu honum nokkrar
krónur, og þó þær væru ekki margar, var sú litla gjöf vel þegin
og gladdi dapran hug. Guðlaug og Stefán áttu tvo sonu, Stefán
og Áslaug. Þeir voru þá mjög ungir, innan við 8 ára aldur. Er
hægt að skilja, að sár hefir verið skilnaðarstundin, þegar hann
kvaddi í síðasta sinn konuna og drengina litlu, sem hann unni
mjög. Eftir að Stefán var kominn á spítalann, skiptust þau á
bréfum móðir mín og hann. Lét hann misjafnt yfir vistinni. Yfir-
hjúkrunarkonan, sem var dönsk, réði flestu, og sagði Stefán hana
stranga. Verst þótti honum, hve fæðið var illa við hans hæfi.
Man ég, að móðir mín sendi honum eitt sinn dálítið af reyktu
kjöti, sem honum þótti gott að fá. Það var kjörréttur flestra á
Godasteinn