Goðasteinn - 01.12.1964, Page 22

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 22
á braut, en Rómverjar komu aftur nokkru seinna, og á fyrstu öld e. Kr. gerði Claudíus keisari England að rómversku skatt- landi. Eftir að yfirráðum Rómverja lauk, flæddu Jótar, Englar og Saxar handan yfir Norðursjóinn inn í England og lögðu það brátt undir sig. Laust fyrir aldamótin 800 hófust svo árásir norrænna manna, og náðu danskir og norskir víkingar völdum víða í landinu og hélzt svo um langt skeið. Einna voldugast þessara víkingaríkja var Danalög í Norður-Englandi. Árið 1013 reyndu Englendingar að þröngva kostum víkinga í landi sínu, en Sveinn tjúguskegg konungur í Danmörk stefndi þá flota sínum vestur um haf og lagði allt England undir sig. Sveinn andaðist árið eftir, og sonur hans, Knútur ríki, lauk verki hans og stjórnaði miklu stórveldi, því að auk Danmerkur og Eng- lands náði hann völdum í Noregi, eftir að Ólafur helgi Har- aldsson hafði verið hrakinn frá völdum og síðar felldur í orrust- unni á Stiklastöðum árið 1030. Knútur ríki var hygginn stjórn- málamaður og tók sér fyrir drottningu Emmu ekkju Aðalráðs konungs ráðlausa, er Sveinn hafði hrakið frá völdum. En Emma var systir Róberts hertoga í Normandie föður Vilhjálms bastarðs. Knútur ríki andaðist 1035 og synir hans, Haraldur og Hörða- Knútur, ríktu eftir hann. Voru þeir áhrifalitlir stjórnendur og urðu skammlífir. Þegar Hörða-Knútur, sá þeirra er lengur lifði, dó 1042, kusu Englendingar til konungs Játvarð góða, son Emmu og Aðalráðs ráðlausa. Þar með var hið gamla engil-saxneska konungdæmi endurreist. Játvarður góði átti fyrir drottningu Gyðu dóttur Guðna jarls, er voldugastur var "aðalsmanna í Englandi. Konungur var guð- hræddur og heiðarlegur, en áhrifalítill stjórnandi. Réð því jarl mestu í landinu, þar til hann féll frá 1052, og varð þá helzti ráðamaður Haraldur sonur hans. Haraldur jarl Guðnason var í mildu dálæti hjá mági sínum konungi, sem var barnlaus. Játvarð- ur góði ríkti í Englandi í 24 ár og andaðist í janúar 1066, án þess að láta eftir sig lögmætan erfingja. Var nú úr vöndu að ráða, því að Vilhjálmur hertogi í Normandie fór ekki í laun- kofa með, að hann gerði tilkall til ríkis í Englandi eftir frænda sinn, Játvarð. Englendingar vildu fyrir engan mun gerast þegnar 20 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.