Úrval - 01.03.1979, Side 8
6
ÚRVAL
væri hjá henni og Bob manni hennar,
byggingaverkfræðingi, á meðan.
„Það er nóg rúm hjá okkur, og það
væri gaman að hafa þig,” sagði hún,
og stúlkan lét til leiðast. Síðar fór hún
heim til foreldra sinna, áður en hún
ákvað að taka að fullu og öilu saman
við föður barnsins og stofna eigin
fjölskyldu.
ÖRLÆTI OG HJARTAGÆSKA eru
sterkir þættir í fari Dorothy Allisons.
Það var ekki aðeins að foreldrar
hennar kæmu upp sínum eigin 13
börnum, heldur tóku þau einnig að
sér dreng, sem varð munaðarlaus við
fæðingu. ,,0kkur var kennt að sýna
hverju öðru umhyggju og deila því,
sem við áttum,” segir Dorothy.
,,Þess vegna fínnst mér svo mikil
fullnægjaí því að hjálpa til við leit að
týndu fólki, þótt það sé á köflum
sárt. Þegar ég hitti foreldra barns,
sem er týnt, yfírfærist hugarvíl þeirra
á mig. Það er eins og ég sé að leita að
mínu eigin barni.”
Dorothy hefur vitað það síðan hún
var barn, að hún er ófresk. Mamma
hennar var það líka. En hún hefur
enga skýringu á ófreskisgáfu sinni og
sér engan tilgang í að velta henni fyrir
sér. Samstarf hennar og lögreglunnar
hófst óvænt klukkan sex að morgni 3.
desember 1967, þegar hún vaknaði
upp af draumi. I draumnum þóttist
hún sjá ungan dreng liggja dáinn 1
pípu, sem tengd var við á. Þetta
hvíldi á henni í marga daga eins og
mara. Loks ákvað hún að skýra
lögreglunni í Nutley í New Jersey
hvað hún hefði ,,séð.” Yfírlögreglu-
þjónninn sagði henni að Michael
Kurcsics hefði drukknað í Þriðjuá um
áttaleytið að morgni 3- desember (um
tveim tímum eftir að hana dreymdi
drauminn) og lík hans hefði ekki
fundist. Hún hikaði við, en sagði svo
yfírlögregluþjóninum að hún væri
ófresk. Hann varð ekki uppnæmur
yfír þeirri staðhæfingu; sagt hafði
verið frá slysinu í staðarblöðunum.
En óbreyttur lögreglumaður,
Donald Vicaro, sem þarna var
nærstaddur, þekkti Kurcsics fólkið og
vildi mjög gjarnan verða því að Iiði.
„Geturðu sagt okkur nokkuð
meira?” spurði hann Dorothy.
„Blöðin hafa hvorki flutt lýsingu á
drengnum né mynd afhonum.”
,Já, ég sé meira. Hann var í
pólóskyrtu, og 1 hana var nælt ein-
hvers konar trúarlegt merki. Þar yfír
var hann í grænni úlpu. Mamma hans
er ekki í borginni. Eitt enn: Hann er
með krummafætur.
Vicaro þótti lýsingin á fötum
drengsins býsna nákvæm. Svo
hringdi hann í Kurcsics. Þekkti hann
Dorothy Allison? — Hver var nú
það? Var Michael með hægri skó á
vinstri fæti og öfugt, þegar hann
týndist? — Það vissi hann ekki,
drengurinn klæddi sig sjálfur um
morguninn. Var frú Kurcsics heima?
— Nei.
Vicaro þóttist sjá í hendi sér, að
Dorothy væri ófresk. Hann spurði
hvort hún vildi hjálpa honum að