Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Side 8

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Side 8
Arsrit Torfhildar skildi ekki neitt þegar barnið fór að tala tungum. Einn af fræðilegum lærimeisturum stefnunnar, Edgar Allan Poe (1809-1849) sá þetta skipbrot hefðbundinnar ljóðlistar að vissu leyti fyrir í grein sinni The Poetic Principle. Sú grein hefst á þessari fullyrðingu: „I hold that long poetry does not exist“ Með „long poem“ á hann við bálka eins og Paradise Lost og Ulionskviðu, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Og stuttu síðar önnur fullyrðing: . . .the day of these artistic anomalies is over. If, at any time, any very long poem were popular in reality, which I doubt, it is at least clear that no very long poem will ever be popular again.5 Ofangreindir kvæðabálkar myndu flokkast undir söguljóð, epísk kvæði þar sem framvindan er rökföst, myndmál einfalt og raskar ekki frásögninni. Poe hafði rétt fyrir sér að því leyti að slík söguljóð næðu illa utanum nútímann en þó gerir bálkur Eliots - The Waste Land - einn af hæstu tindum í moderniskri ljóðagerð, orð hans að mestu ómerk. Þó aðeins að hálfu leyti því maður talar ekki um þá í sömu andrá nema til að tefla saman andstæðum. Annar „galli“ á grein Poes er fullyrðingin að......poem may be improperly brief.“6 Því stefna sem kölluð var ímagismi einkenndist m.a. af mikilli samþjöppun, ljóðin urðu jafnvel ekki nema tvær línur eins og eitt þekktasta ljóð konungs stefnunnar, Ezra Pound: 6 In a station of the Metro The apparition of these faces in the crowd; Petals on a wet, black bough.7

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.