Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Blaðsíða 42
Benedikt Sigurðsson
Breyskleiki Macbeths
Hver er Macbeth? Hver er þessi fræga sögupersóna sem
leggur fyrst líf sitt aó veði fyrir föðurlandið en neytir síðan
óréttmæts valds síns á skelfilegan hátt? Er Macbeth
grimmdarseggur eða aðeins breyskur maður er fer villur vegar?
Hvert er erindi Macbeths á vorum tímum? Hér leitast ég við að
svara þessum spurningum. Fyrst fjalla ég um breyskleika
Macbeths og örlög. Því næst vík ég að manneðlinu almennt í
tengslum við Macbeth.
Macbeth er klassískur harmleikur. Höfuðpersónan gerir
afdrifarík mistök, hún lætur freistast og geldur þess með lífi
sínu. Þar eð mistök Macbeths eiga rætur að rekja til mannlegs
breyskleika öðlumst við samúó með honum.
Fyrir spá nornanna er Macbeth göfugmenni. Hann leggur
líf sitt undir í þágu föðurlandsins:
Doubtful it stood,
As two spent swimmers, that do cling together
And choke their art. The Merciless Macdonwald
(Worthy to be a rebel, for to that
The multiplying villainies of nature
Do swarm upon him) from the western iles
Of Kernes and Callowglasses is supplied;
And Fortune, on his damnéd quarrel smiling,
Showed like a rebels whore: but all’s to weak;
For brave Macbeth (well he deserves that name),
Disdaining Fortune, with his brandished steel,
40