Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 16

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 16
Arsrit Torfhildar Tíminn og vatniö, þótti hún það nýstárleg aö menn tóku yfirleitt ekki eftir því að hún var reglulega stuðluð að mestu og rími brá fyrir. Bók Jóns úr Vör, Þorpið, var róttækari hvað ytra form áhrærir. En ástæðan fyrir því að Dymbilvaka er talin tímamótaverk, liggur öðru fremur í myndmálinu. Hugsun myndmálsins, ef svo má orða það. Bæði er það oft nýstáriegt (klæddur í silki sem mér ormar ófu/upp rís ég fölur þessa vökunótt) og einnig, sem kannski á stærstan þátt í að gera Dymbilvöku að tímamótaverki, varpar skáldið hverri myndinni upp á fætur annarri án þess aö hann reyni að sýna framá e-a röktengingu á milli þeirra. Hann er ekki að segja frá, rekja e~n atburð, heldur reyna reisa sig og heiminn á fætur eftir kollsteypuna með s-heimsstyrjöldinni og afleiðingum hennar. Heimurinn var nýr. Eftir að síðustu byssuskotin voru hljóðnuð og vindurinn búinn að dreifa púðurmökknum, þá blasti við veröld þar sem tvö risaveldi störðu hatursfull hvort á annað, með jörðina kramda á milli sín, og veifuðu vopnum sem gátu kallað eilíft myrkur yfir mannkynið. Tími alvitra skálda var liðinn. Tími mælskufullra og stuðlaðra frásagna með lausnir heimsins í lokaerindinu var liðinn. Veröldin rímaði ekki lengur, orð virtust hafa glatað merkingu sinni. Óvissa og ringulreið blasti við. Það kallaði á nýjar aðferðir. Nýtt tungutak. V DYMBILVAKA Fyrsti hluti: Ljóðmælandinn sér með vökuþreyttum augum hvar maður stendur fyrir utan gluggann og bíður eftir athygli. 14

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.