Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 31

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 31
Arsrit Torfhildar Þessar stefnur hafa báðar stóran annmarka. Hann er sá aó menn leita logandi ljósi að fyrirmynd eóa forsögn fyrir mannkynió til að fylgja. Það er ljóst að Swift er mikið niðri fyrir, þegar hann skrifar þessa sögu, en gefur hann okkur eitthvað ákveóió svar? Gagnrýni Swifts beinist í allar áttir, en sá hluti sem ég hyggst staldra við í þessari ritgerð er viðhorfið til skynseminnar. Skynsemin er þungamiðjan í sögunni og af þeim sjónarhóli séð er hér á ferðinni mögnuð viðvörun til mannkyns. í þessu samhengi er athyglisvert að skoða skynsemishyggjuna á dögum Swifts, hugmyndirnar aó baki samfélags Hestlendinganna og hvernig þetta fellur saman við þær hugmyndir um manninn og siðferði samfélaga, sem spruttu upp úr skynsemishyggju 18. og 19. aldar, til dæmis nytjahyggjuna, þróunarkenningu þjóðfélaga og fleira. ÖLD SKYNSEMINNAR Á dögum Swifts var Upplýsingin eða fræðslustefnan allsráðandi í Bretlandi. Vísindin voru í endurnýjun, hindurvitni voru skilin eftir og fræðin sögðu skilið vió kirkjuna. Nýjar kenningar og lögmál ruddu sér til rúms og vísindin urðu nánast trúarbrögó út af fyrir sig. Allt horfði til betri vegar fyrir mannkynið því manninum var ekkert ómögulegt ef hann beitti SKYNSEMINNI. Fylgjendur upplýsingarinnar kenndu sig við nýja tíma og kölluðu sig ,,moderns“. En á tímum þessarar almáttugu skynsemi voru líka miklar andstæður í þjóðfélögum Bretlandseyja: Örbirgð og hungursneyð ríkti víða, hjátrú og galdrafár geisaði mitt í vísindatrúnni og Englendingar undirokuðu og kúguðu íra. Andstæðingar Upplýsingarinnar höfðu miklar efasemdir um þessa ofurtrú á skynseminni. Þeir vildu líta til baka og kölluðu 29

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.