Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Blaðsíða 62
Hann var 35 ára gamall þegar hann lagði sjálfan sig inn á
líknardeild Los Angeles sýslusjúkrahússins, að niðurlotum
kominn eftir stanslausa drykkju í 10 ár. Eftir að hafa verið
útskrifaður þaðan keypti hann sér ritvél og byrjaði aftur að skrifa.
í þetta sinn jafnt ljóð sem prósa. Frá 1960 hefur Bukowski gefið
út að meðaltali rúmlega eina bók á ári; ljóðabækur,
smásagnasöfn, skáldsögur og sjálfsævisögur.
Eins og áður sagði gerast sögur Bukowskis margar hverjar í
heimaborg hans, Los Angeles. Flestir þekkja þá borg sem
miðstöð kvikmyndaiðnaðarins í heiminum og vegna þess að þar
búa stjörnurnar sem sífellt er fjallað um í slúðurdálkum
dagblaðanna. En það er aldeilis ekki glamúrheimur fræga
fólksins sem Bukowski skrifar um. Aðalpersónurnar í verkum
hans eru utangarðsfólk í þjóðfélaginu; hórur, fyllibyttur,
fjárhættuspilarar og slagsmálahundar. En þetta fólk bölsótast
ekki út í þjóðfélagið eða barmar sér yfir örlögum sínum nema ef
til vill þegar timburmennirnir berja hvað ákafast á dyr.
dying for a beer dying
for and of life
on a windy afternoon in Hollywood.i
í sögum sínum og ljóðum beinir Bukowski athyglinni að
sjálfum sér og vinnur úr lífi sínu meðal utangarðsfólks gegnum
tíðina. Sögumenn eru oft sjálfmenntaðir rithöfundar, búa í Los
Angeles og verja flestum sínum stundum í að hórast, drekka og
slást. Dæmigerður sögumaður úr verkum Bukowskis er Henry
Chinaski en þann kumpána kannast kannski einhverjir við sem
aðalpersónu kvikmyndarinnar Barfly en Bukowski skrifaði
einmitt handritið að þeirri mynd.
í smásögunni "The Great Poet" 2segir frá blaðamanni nokkrum
sem hefur verið sendur út af örkinni til að taka viðtal við
fornfrægt ljóðskáld sem komið er á efri ár. Skáldið býr á K.F.U.M
hóteli og þegar blaðamanninn ber að garði liggur sá gamli í
herbergi sínu í eigin ælu og saur og er blindfullur.
Blaðamaðurinn lætur það þó ekki á sig fá heldur opnar glugga
60