Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 82

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 82
líkt og gert er í móderismanum, heldur er hann einfaldlega jaðraður (decentered) og með honum sú sögulega fortíð sem óhjákvæmilega er hluti hans. Að baki þessari sköpun er vantrú á að samtíminn, eða hin eiginlega saga, séu þess megnug að geta orðið að efnivið í bókmenntaverki, en um leið er haldið fast í þá trú að lesandinn verði að ná sambandi við verkið með einhverjum hætti. Hið ótrúlega, eðaþað sem er á mörkum þess raunverulega, er þar af leiðandi fært inn í nafnhverft samhengi skáldaðs veruleika, sem gefur þessum þáttum jarðsamband og af því leiðir að lesandinn skynjar þá sem röklega hluta þessa samhengis. Verkið er því sífellt að kortleggja sitt eigið rými og að láta atburði sem eiga sér stað innan þess vísa til samhengisins sem liggur þeim til grundvallar. Þetta er sérstaklega áberandi í kaflanum: "Mér langar sko ekki hundaskít til að eiga heima hjadna!", þar sem ferð Grjóna og Badda um hverfið með fulla blaðburðatösku af Vísi, hjálpar lesandanum að átta sig á kennileitum og vörðum í landslagi söguheimsins. Einnig má líta svo á að hið myndhverfa samband merkingarkjarna og merkingarauka sé veigamikill þáttur í að afmarka rýmið og slíta það úr sambandi við hinn sögulega tíma. Þannig bregður samlíking Gamla hússins við kastala, með braggahverfið sem umliggjandi lén (bls.39), upp mynd af sögusviðinu sem einslags ævintýraheimi og aðrir þættir í landslaginu umhverfis verða til að undirstrika þessi landamæri svo sem blokkirnar, pollurinn og Aðalgatan. Frá sama sjónarhorni má líta á ljósið og myrkrið í Gamla húsinu. Þegar Gamla húsið rís og ljósið tekur að lýsa í gluggum þess er söguheimurinn reistur en hann hrynur þegar ljósið loks slokknar og Gamla húsið er jafnað við jörðu ásamt braggahverfinu. Þegar ýtt er til hliðar þeirri sögulegu vitund sem tengir söguheiminn við ákveðið tímaskeið, felur það að vísu ekki í sér að sögulegar fyrirmyndir hverfi heldur fremur að hin eiginlega saga eins og hún hefur verið skilin lengst af þessari öld, birtist ekki lengur sem veruleiki heldur sem eftirmynd sögu. Fyrirmyndin hlýtur því af einhverjum orsökum að hafa misst gildi sitt ef ekki er lengur hægt að setja hana fram sem veruleika. Bandaríski marxistinn Frederic Jameson heldur því fram að þessi 80

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.