Upp í vindinn - 01.05.2011, Blaðsíða 36
Heimildir
Óli Þór Magnússon, (2011).
Endurnýting d húsnœði og byggingarefnum.
Skipulag, jramkviemd og árangur.
Island: Háskóli Islands. Mastersritgerð
efniskostnaði. Þetta þýðir að verkefnið var
mannaflsfrekt í samanburði við hefðbundnar
leiðir. Sem sagt, fleiri fagmenn fá vinnu við
að lagfæra og endurnýta byggingarefnið sem
tryggði fleirum atvinnu á verktíma. Að auki ætti
framkvæmdin að hafa verið gjaldeyrissparandi
því að áætla má að töluverður hluti nýrra
byggingarefna hefði verið fluttur inn í stað þess
sem endurnýtt var í verkefninu. Því má ganga
út frá því að aðferðafræðin sé þjóðhagslega
hagkvæmari heldur en ef aðrir kostir hefðu verið
valdir. Ávinningurinn af því að notast við þessa
aðferðafræði og hugsunarhátt er eftirfarandi:
• Umhverflsvænt, minni mengandi
útlosun á gróðurhúsalofttegundum.
• Minna rusl og minni förgun og þar af
lægri kostnaður við eyðingu.
• Minni innflutningur á vöru,
gjaldeyrissparnaður.
• Verkefnin eru ódýrari sem kallar á lægri
fjármagns- og framkvæmdakostnað.
• Raunverulegur sparnaður sem dregur ekki
úr framkvæmdum eða vinnu. Framkvæmdir
eru ódýrari og kalla á hærra hlutfall vinnuafls
sem getur fyrirbyggt eftirfarandi liði:
1. Atvinnuleysi og/eða að missa starfsfólk
eða starfsgreinar úr landi en af því leiðir
lægri skatttekjur og félagsleg vandamál.
2. Eignir liggja undir skemmdum vegna
framkvæmdaleysis því að viðhald
er áætlað of kostnaðarsamt með
hefðbundnum leiðum.
Fagmennska verður meiri hjá fyrirtækjum
því það útheimtir góða fagmenn að
endurnýta byggingarefni og þessi fyrirtæki
verða eftirsótt til starfa. Einstaklingar
og fýrirtæki, sem tileinka sér þennan
hugsunarhátt, ættu að vera ábyrgari,
meðvitaðri um endurnýtingu og hafa
heilbrigðari hugsunarhátt fyrir þjóðfélagið.
Mynd 7: Hluti af endurnýttu byggingarefni úr verkefnum
sem voru rifín á Asbrú.
því að byggja nýtt húsnæði eða ef farnar væru
hefðbundnar leiðir í viðhaldsbreytingum.
Annar ávinningur
Ef skoðaðir eru fleiri fletir, er snerta arðsemi eða
hagkvæmni við aðferðafræðina, má nefna að í
framkvæmdinni er mjög hátt hlutfall vinnu á
móti efni hvað varðar kostnaðarsamsetningu
í verkefnunum á Asbrú. Hlutfallið er um
75%-80% vinnuliður á móti 25%-30%
Getur þú hugsað þér daglegt líf án rafmagns?
Meginaðsetur RARIK er að finna að Bíldshöfða 9 í Reykjavík. Starfstöðvar og aðsetur eru víða um land og svæðismiðstöðvar eru í Stykkishólmi,
á Akureyri, Egilsstöðum og á Hvolsvelli. Starfsmenn eru um 200 og starfar um fjórðungur þeirra á aðalskrifstofu, en aðrir eru dreifðir á um 25
starfsstöðvar fyrirtækisins.
^RARIK
36 .upp í vindinn