Upp í vindinn - 01.05.2011, Side 28
Mynd 2 - Ljósmyndir af rilraunaruppsecningu á Lagnakerfamiðstöð Islands
var í Kárahnjúkum felst í vörpun á mældu
eðlisfræðilegu hrýfi yfir í straumfræðilegt hrýfi.
Almennt er straumfræðilegt hrýfi ótilgreint
fall af dýpt ójafna á yfirborði, þéttleika þeirra
og gerð. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til
þess að tengja þessar stærðir saman fræðilega
og með tilraunum. Tilraunirnar eru þó fáar
og hafa ekki verið skalaðar þannig að draga
megi einhlítar ályktanir um niðurstöðurnar
fyrir falltap við fullkomið iðustreymi, eins og
er í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar.
Því var matinu fylgt eftir með kerfisbundnum
píputilraunir í Lagnakerfamiðstöð Islands á
Keldnaholti sumar og haust 2010.
Tilraunir
Hönnun
Tilraunirnar voru hannaðar til að sannreyna
mismunandi aðferðir við vörpun á mældu
raunhrýfi yfir á straumfræilegt hrýfi. Þær fólu í sér
bæði beinar mælingar á falltapi eftir mishrjúfum
pípum og útreiknað falltap út frá laser mælingum
á innra borði pípanna.
Tilraunirnar voru settar upp á kerfisbundinn
hátt til að kanna áhrif mismunandi þátta hrýfis á
Stöðugt vatnsborð
Mynd 2 - Skemacísk ceikning af tilraunaruppsetningu á Lagnakerfamiðstöð íslands
falltap, s.s. fjarlægð milli óregla, dýpt óregla og
mun á lotubundnu hrýfi og óreglulegu (sjá mynd
1). Tilraunirnar voru skalaðar með Reynolds
tölu og hlutfallslegu hrýfi innra borðs pípa svo
fullkomið iðustreymi væri í pípunum.
Uppsetning
Akveðið var að setja upp tilraun sem var fremur
einföld svo auðveh væri að hafa yfirsýn yfir
skekkjur og áreiðanleika mælinga. Tilraunin
var hönnuð og sett upp frá grunni í sal
Lagnakerfamiðstöðvar íslands á Keldnaholti.
Tilraunauppsetningin skiptist í grófum
dráttum í þrennt (sjá mynd 2). Fyrsti hlutinn er
ker þar sem vatnsborði er haldið í stöðugu. Yfir-
fall var útbúið til að tryggja að vatnshæðin héld-
ist stöðug svo lágmarka mætti þrýstingssveiflur í
kerfinu og skekkjur vegna þeirra. 1,5 m þrýstihæð
drífur vatn í gegnum 7,5 m langa, hrjúfa pípu.
Vatnið rennur um pípuna í ker þar sem rennsli
er mælt.
Tilraunin snérist um að mæla tvær stærðir,
1) rennsli í gegnum pípuna og 2) þrýsting inní
pípunni á mismunandi stöðum.
1) Rennsli var mælt með því að taka tíma á
hversu lengi mæliker, með þekktu rúmmáli, væri
að fyllast.
RÉTTINGAR - SPRAUTUN