Upp í vindinn - 01.05.2011, Blaðsíða 47
Öryggisáhættugreiningar - sprengitæknilegir útreikningar
öðrura tilvikum þarf að gera ráð fyrir líkindalegri
dreifingu, með fleiri útreikningum sem meta
áhrif mismunandi staðsetninga. Slíkt er þá teldð
inn í sprengitæknilega áhættugreiningu. Slíkar
greiningar eru t.d. notaðar við mat á áhættu fyrir
skipulag byggðar, vegna vega þar sem flutningur
á hættulegum efnum fer fram. Þá þarf að greina
líkur á slysi í flutningum m.v. mismunandi
vegakafla og meta mögulegar afleiðingar þessara
slysa.
Til að greina afleiðingar sprengingarinnar
er í flestum tilvikum nauðsynlegt að nota
sprengitæknilega útreikninga og tölvulíkön, þar
sem umhverfið sfyrir miklu um hver áhrifin verða
lengra frá sprengingunni. Þá er einnig mögulegt
að taka tillit til efniseiginleika og útfærslu
mannvirkja og hanna varnir þeirra til að minnka
áhrifin. Með slíkum tölvulíkönum má einnig
greina afleiðingar fyrir fólk, sem statt er inni í
byggingum eða einhvers staðar á áhrifasvæði
sprengingarinnar.
Dæmi um hönnun
EFLA hefur framkvæmt útreikninga fyrir flestar
sprengiefnageymslur á Islandi, sem og framkvæmt
útreikninga og áhættugreiningar vegna flutnings
á sprengiefnum. I slíkum greiningum er metin
áhættan af áhrifum sprenginga á umhverfi, eignir
og öryggi fólks. Greining á afleiðingum slíkra
sprenginga er framkvæmd með því að gera líkan
af svæðinu sem um ræðir, þar sem tekið er tillit
til umhverfislegra þátta og staðsetningu varna.
A mynd 3 má sjá dæmi um áhrif sprengingar
í flutningum á sprengiefni.
Fyrir dyrum stendur endurbygging á
Slussen svæðinu í miðborg Stokkhólms, þar
sem hugmyndin er að byggja yfir eða framlengja
jarðgöng og byggja hús þar ofan á. EFLU hefur
verið falið að gera umfangsmilda greiningu vegna
flutninga á sprengiefni eftir þessum göngum.
Á mynd 4 má sjá fyrirhugaðar byggingar og á
mynd 5 gefur að líta líkan með greiningu á
afleiðingum sprengingar á mannvirki í kring.
Gerðar voru margar samanburðargreiningar á
mismunandi útfærslum til að meta áhrif fyrir og
eftir breytingar og finna ásættanlega lausn.
Sprengitæknilegar greiningar í iðnaði geta
veitt mikilvægar upplýsingar um hættu fyrir
starfsmenn og starfsemi. Oft eru slíkar greiningar
hluti af stærri áhættugreiningu fyrir starfsemina,
sem taka þá tillit til margvíslegrar áhættu, sem
ISLOFT
BLIKK OG STÁLSMIÐJA EHF.
Bíldshöföa 12. 112 Reykjavlk - Slmi 587 6666 ■ Fax 567 3624
isloft@isloft.is - www.isloft.is
SJUKRAÞJALFUN
KÓPAVOGS EHF
HAMRABORG 12 - 200 KÓPAVOGUR
S. 564 1766 & 554 5488 ■ FAX 564 1799
framhald..