Upp í vindinn - 01.05.2011, Blaðsíða 59
Vistbyggðarráð
/^énstHCnn th^
HSORKA HF
könnun á því hve margir hjá verkfræðistofunum
vinna nú um þessar mundir við verkefni á sviði
raforkuöflunar, raforkudreifingar, nýtingar
jarðhita til upphitunar og fyrir iðjuverin í landinu
leiðir í ljós að fjöldi þeirra er umtalsverður og
kemur nrörgum á óvart.
Um þessar mundir þjóna um 300 manns hjá
ráðgjafarfyrirtækjum í verkfræði og jarðvísindum
íslenskum orkufyrirtækjum og dreifiveitum.
Því til viðbótar vinna um 200 manns hjá
verkfræðistofunum fyrir orkufreka iðnaðinn.
Að sjálfsögðu vinnur einnig fjöldi tæknimanna
og vísindamanna hjá orkufyrirtækjunum og
iðnfyrirtækjunum sjálfum og hjá verktökum og
margs konar framleiðendum sem þeinr þjóna.
Með öðrum orðum eru á fyrri hluta
ársins 2011 yfir þriðjungur sérfræðinga
verkfræðistofanna við störf fyrir orkugeirann og
orkufrekan iðnað.
Þetta er afrakstur meira en hálfrar aldar
stefnu stjórnvalda um að nýta orkulindirnar til
verðmætasköpunar, atvinnu og annarra hagsbóta
fyrir þjóðfélagið. Nú þegar þrengt hefur að eftir
efnahagshrunið munar svo sannarlega um minna.
Þessi þróun í íslenska orku- og
iðnaðargeiranum hefur leitt til þess að íslensk
fyrirtælci hafa nú alvöru forsendur til þess að
markaðssetja nýjustu og bestu þeldtingu á þessum
sviðum á alþjóðlegum vettvangi. Öflugur grunnur
að þessari starfsemi er nú til staðar hér heima.
Að þessu er víða unnið og árið 2009 er talið að
erlendar tekjur af slíkri starfsemi hafi numið
um 1,5 milljarði króna. Betur má ef duga skal
og gert er ráð fyrir að þessi útflutningsstarfsemi
aukist smám saman með aukinni markaðssókn.
Markaðsstarf stofanna hefur aukist verulega eftir
að síðasta þenslutímabili hér á landi lauk.
Ef horft er til lengri framtíðar mun tæknileg
ráðgjöf gegna miklu hlutverld við áframhaldandi
uppbyggingu í landinu og frekari nýsköpun á
mörgum sviðum. Hagsæld, velferð og atvinnustig
mun byggja á því að áfram séu sköpuð margs
konar verðmæti á grunni tæknilegrar þekkingar
til innlendra þarfa og ekki sxst til útflutnings.
En þarna skýtur einu skökku við. I
háskólunum á Islandi er hlutfall nemenda í
verkfræði, raunvísindum og tengdum greinum
umtalsvert lægra en í framsæknum löndum í
okkar heimshluta. Hlutfallið hér er samanlagt
um 16% í þessum greinum, þar af aðeins um
9% í verkfræði og tengdum greinum. Tilsvarandi
samtala er 36% í Finnlandi og 31% í Þýskalandi
og 25% í Svíþjóð. Þetta er verulegt áhyggjuefni
og við því þarf að bregðast því það er alþekkt
að öflug tæknileg undirstaða skapar ný tækifæri.
Þá slóð hafa margar þjóðir fetað með góðum
árangri. Við þurfum því að spýta í lófana, efla
tæknideildir háskólanna og stuðla að því að unga
fólkið leiti inn á þessar námsbrautir.
Þannig byggjum við upp
öflugra ísland.
Þekkingarfyrirtæki
í málmiðnaði og
véltækni
= HÉÐINN =
Sími 569 2100 • hedinn.is