Upp í vindinn - 01.05.2011, Blaðsíða 80
AÐ VAR fallegt um að litast á litla
Islandi árla morguns þann 13.
maí þegar hópur þriðja árs nema í
umhverfis- og byggingarverkfræði
lagði af stað í eina eftirminnilegustu
ferð sína til þessa. Hópurinn hafði unnið
hörðum höndum að skipulagningu og
fjármögnun ferðarinnar allan veturinn og ríkti
mikil eftirvænting í brjóstum allra. Kreppan
hafði tiltölulega nýskollið á landið og fýrirtæki
héldu fastar um pyngjuna en þau höfðu gert í
góðærinu, en verkfræðinemarnir létu það ekki á
sig fá og nýttu sér hinar ýmsu aðferðir við að ná
sér í smá aur. Sem dæmi tóku þeir að sér að þjóna
til borðs á jólahlaðborðum ásamt því að telja eitt
og annað, eins og nagladekk, fólk í strætó og
atkvæði í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni um
Icesave samninginn. Einnig seldu þeir allskyns
lúxusvörur og að sjálfsögðu auglýsingar í hið
frábæra rit ...upp í vindinn. A endanum hafðist
þetta allt saman og skömmu eftir erfiða prófatörn
rifu bugaðir nemendur sig upp úr bókunum,
pökkuðu ofan í töskur og héldu á vit ævintýranna
í Dubai ögTaílandi.
Framundan var tæplega þriggja vikna
langt ferðalag sem hófst þegar hópurinn
hittist á Keflavíkurflugvelli, ásamt Birni
Marteinssyni, kennara, doktor, vélaverkfræðingi,
byggingarverkfræðingi, arkitekt og lífskúnstner
með meiru. London var fyrsti áfangastaðurinn
og lenti hópurinn þar um hádegisbil, en þá voru
9 klukkustundir í næsta flug og var sá tími nýttur
til ýmissa verka. Einhverjir brunuðu í miðbæ
London og skoðuðu það helsta sem borgin hefur
upp á að bjóða á örfáum klukkustundum á
meðan aðrir, stelpurnar þó aðallega, höfðu leitað
uppi H&M búð í nálægri verslunarmiðstöð. Loks
hittust allir aftur á Heathrow og tók þá við 7 tíma
flug til Sameinuðu arabísku furstadæmanna í
einni glæsilegustu flugvél sem flestír hópmeðlimir
höfðu komið um borð. Hver farþegi hafði sinn
eigin skjá með fullkomnu afþreyingarkerfi sem
innihélt sjónvarpsefni, tónlist og tölvuleiki ásamt
því að hægt var að hringja á milli sæta. Flestir
reyndu að vinna upp tapaðan svefn í fluginu á
meðan aðrir nutu tækninnar til hins ýtrasta
Dubai
Hópurinn lenti á flugvellinum í Abu Dhabi,
eldsnemma á föstudagsmorgni þann 14.
maí og varð honum strax ljóst að eitthvað
stórkostlegt var í vændum, þá aðallega hvað
byggingar og byggingarstíl varðar. Flugstöðin
var hin glæsilegasta og hvergi til sparað. Gólf
og veggir glönsuðu svo hægt var að spegla sig í
þeim og verslanir buðu einungis upp á dýrustu
vörumerkin. Hoppað var upp í rútu og ekið í um
eina og hálfa klukkustund til Dubai, en nemendur
höfðu ákveðið að námshluta ferðarinnar yrði
GOODfYEAR
KLETTUR Klettagörðum 8-10 1104 Reykjavík I Sími: 590-5100