Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 10

Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 10
Náms- og útskriftarferð nema í Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla íslands árið 2015 var með öðru sniði en síðustu ár. Lítill hópur útskriftarnema sýndi ferðinni áhuga þetta árið og fór svo að einungis 5 nemendur, þéttur hópur stelpna, hóaði sig saman og byrjaði að skipuleggja utanlandsferð. Tekin var ákvörðun um að skipuleggja ferðina frá grunni án aðstoðar ferðaskrifstofa. í upphafi var talið að slíkt væri ekki mikið mál. Að loknum miklum vangaveltum voru valdir áfangastaðir, San Francisco, Mexico City, Playa del Carmen og loks Puerto Rico. Námsferðin sjálf var til San Francisco en mun erfiðara var að skipuleggja vísindaferðir fyrir ferðina en búist var við í upphafi. Það gekk þó upp að lokum. Þann 10. maí hófst frábært ferðalag með flugi til San Francisco en með í för voru tveir makar og Hörn Hrafnsdóttir kennari. Við lentum seint um kvöld og var því strax lagst til hvílu við komu. Daginn eftir fórum við í fyrstu eiginlegu vísindaferðina, það var vínsmökkunarferð um vínekrur Sonoma-sýslu sem var frábær byrjun á ferðalaginu. 1 þeirri ferð smökkuðum við ekki einungis vín heldur skoðuðum við einnig flóðvarnargarða í Guerneville, Johnson’s Beach, sem ætlaðir eru til þess að stöðva krapa sem myndast hátt í fjöllunum fyrir ofan. Daginn eftir var frjáls dagur og var hann nýttur í vapp um borgina ásamt því að skoða hinar ýmsu verslanir. Vísindaferðirnar héldu svo áfram þann 13. maí þegar við heimsóttum Department of Building Inspection (DBI) og fræddumst um starfsemi sviðsins en þeir hafa meðal annars eftirlit með byggingum sem er mikilvægt verk í svo stórri og fjölmennri borg. Frá DBI lá leið okkar í háskólann í Stanford þar sem Kyle Scott Douglas, dósent við jarðskjálftadeildina, tók á móti okkur og sýndi okkur aðstöðuna sem þeir hafa (það má segja að hún sé örlítið stærri en sú sem við höfum í Háskóla Islands). Þar hittum við einnig Royal Kopperud sem starfar við Umhverfis- og byggingarverkfræðideildina í Stanford og sýndi hann okkur stórar ölduvélar og „laserherbergi“ sem nýtt er við rannsóknir í straumfræði. Það var mjög áhugavert að skoða skóla á þessum mælikvarða og hugsa ég að við höfum allar velt því fyrir okkur að sækja um. SPUR hafði boðið okkur á opnunarkvöld á sýningunni „Design for Resilience" að kvöldi 14. maí en SPUR er leiðandi stofnun í borgarskipulagi sem stuðlar að góðri hönnun og stjórnsýslu á San Francisco svæðinu og fleiri svæðum í Bandaríkjunum. Þar voru til sýnist plaköt af bestu hugmyndunum sem bárust samkeppni á vegum SPUR. Samkeppnin snerist um að koma með hugmyndir um hvernig hægt væri að koma í veg fyrir eyðileggingu af völdum fellibylja í New York og New Jersey. Kveikjan að þessari samkeppni var einmitt fellibylurinn Sandy sem reið yfir það svæði árið 2012. A síðasta degi námsferðarinnar, þann 15. maí, hjóluðum við yfir Golden Gate brúna sem talin er vera ein fallegasta brú veraldar og virtum við fyrir okkur þetta magnaða mannvirki. Golden Gate er hengibrú sem nær yfir San Francisco flóa í Californiu fylki í Bandaríkjunum en hún var opnuð árið 10

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.