Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 53

Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 53
 • • Oskugos ogflug í Evrópu Greining á samstarfi hagsmunaaðila með sviðsmyndum Uta Reichardt Guðrún Pétursdóttir Doktorsnemi í Umhverfis- Dósent og forstöðumaður og auðlindafræði Stofnunnar Sæmundar fróða Guðmundur Freyr Ulfarsson Prófessor og deildarforseti við Umhverfis- og byggingarverk- fræðideild Truflun á flugi í einum heimshluta getur haft víðtæk fjárhagsleg og samfélagsleg áhrif víða um heim. Eyjafjallajökuisgosið í apríl 2010 var dæmi um þetta þar sem meira en 100,000 flug voru felld niður og áætlað efnahagstap á heimsvísu var um 5 milljarðar Bandaríkjadollara.1 Ljóst er að öskugos munu áfram eiga sér stað og því er mikilvægt að vera vel undir þau búinn. I þessu verkefni var kannað hvernig fluggeirinn er undirbúinn undir annað öskugos. I rannsókninni er kannað hvernig áhættustjórnun og áætlanagerð evrópska fluggeirans hefur þróast frá gosinu í Eyjafjallajökli 2010. Rannsóknin er hluti af evrópsku rannsóknarverkefni sem kallast ENHANCE og fjallar um samstarfsnet hagsmunaaðila í náttúruhamförum.2 Ýmsum aðferðum er beitt til að greina samstarf og samskipti milli hagsmunaaðilanna. Tekin voru viðtöl við sérfræðinga og einnig var sett upp vinnustofa þar sem hagsmunaaðilar unnu með sviðsmyndir af mismunandi öskugosum til þess að finna veikleika og styrkleika og stinga upp á leiðum til að bæta undirbúning og framkvæmd viðbragða. Sviðsmyndir náttúruhamfara Síðasta gos í Eyjafjallajökli hafði mikil áhrif á flugumferð. Þetta gos var hins vegar ekki sérstaklega stórt miðað við eldgos hér á landi.3 Eldgos á íslandi geta bæði staðið lengur og styttri gos geta einnig valdið mun meira öskufalli. Taka þarf tillit til slíkra möguleika þegar gerðar eru áætlanir um áhrif öskugosa á flugumferð. Rannsóknarhópurinn notaði söguleg gögn og upplýsingar frá eldfjallafræðingum til að setja fram tvær sviðsmyndir um verulega stærri atburði en Eyjafjallagosið 2010. Sviðsmyndirnar voru notaðar til að rannsaka hvernig samstarf og samskipti hagsmunaaðila í fluggeiranum virka þegar brugðist er við miklu öskugosi. Eldfjallastöð Yeðurstofunnar í Lundúnum (London Volcanic Ash Advisory Center) hefur sett fram líkan um öskudreifingu sem kallað er NAME og var það notað til að herma dreifingu ösku í sviðsmyndunum.4 Miðað var við veðrið í apríl 2010, en þau veðurskilyrði voru sérstaklega slæm þar sem vindátt olli því að mikil aska barst til Evrópu. Hugbúnaður í Python forritunarmálinu var notaður til að meðhöndla niðurstöðurnar og búa til spákort um öskudreifingu í llughæð 200 (flight level 200, sem þýðir 20,000 fet). Fyrri sviðsmyndin lýsir nýju Eyjafjallajökulsgosi með miðlungs öskumyndun sem svipar til síðasta goss nema hvað það stendur yfir í 24 vikur, eða fjórum sinnum lengur en gosið 2010. Ekki er gert ráð fyrir að gosið sé samfellt allan þennan tíma, en þó sé öskumyndun á nokkurra daga fresti allan tímann. Það verða því endurteknar truflanir á flugumferð í nokkra daga í senn yfir fimm mánaða tímabil. Þessi sviðsmynd prófar hvernig hagsmunaðilar takast á við langt tímabil þar sem stanslaust þarf að fara fram áhættugreining og viðbragðsáætlun þarf að vera viðvarandi. Mynd 1 sýnireina hermun á öskudreifingu í fimm daga eftir sólarhrings gos í Eyjafjallajökli. 53

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.