Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 49

Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 49
Upplýst og sveigjanleg rafmagnsnotkun Fyrir næstum fimm árum útskrifaðist ég úr umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla íslands og tveimur árum seinna sem orkuverkfræðingur frá ETH í Zurich. Þá hafði ég eytt tveimur árum í að kynnast orkukerfum Evrópu, mörkuðum og vandamálum. Rétt fyrir útskrift sátum við nokkrir skólafélagar og ræddum um rafvæðinguna sem fer nú fram á Indlandi og hversu mikið tækifæri það er að hafa milljónir nýrra rafmagnsnotenda. Einstaklinga sem hafa enga fyrri reynslu af rafmagni. Hvernig myndum við kynna rafmagn fyrir fólki í fyrsta skiptið? Hvernig myndum við byggja upp orkukerfið ef við gætum byrjað frá grunni? Við urðum ásáttir um að einn mikilvægur þáttur, og þáttur sem verður mikilvægari með degi hverjum, er sveigjanleiki notenda. Nú þegar við reiðum okkur meira og meira á endurnýjanlegar en sveiflukenndar orkulindir, svo sem sól og vind, þá væri hjálplegt ef notkun myndi elta náttúrulegar sveiflur orkuuppsprettanna. Alag á kerfið myndi jafnast út og þörf fyrir orkugeymslu og hefðbundin orkuver myndi minnka. Annar mikilvægur þáttur er að upplýsa notendur í rauntíma um hvernig orkukerfið virkar og hvaðan rafmagnið kemur. Notendur sem hafa meiri upplýsingar um orkukerfið nota minni orku, þeir geta einnig fært orkunotkun sína að þeim klukkustundum þegar orkuframleiðsla er grænni. Fyrstu skref Shared Electric Smám saman tóku þessar samræður á sig mynd og í byrjun árs 2014 var fyrirtækið Shared Electric stofnað um þá hugmynd að hafa orkukerfi þar sem áhersla er lögð á upplýsingagjöf og þátttöku (sveigjanleika) notenda. Til þess að þróa og prófa þessa aðferð fengum við styrk frá Climate- KIC sem er hluti af Horizon 2020, evrópsku verkefni gegn losun gróðurhúsalofttegunda. f maí 2014 fórum við til Indlands og settum upp lítið rafvæðingarverkefni í Balangir í Odisha. Lítið þorp var rafvætt með búnaði sem upplýsti á einfaldan hátt notendur um hversu Karl Njálsson Framkvæmdastjóri og stofnandi Shared Electric gott væri að nota rafmagn á hverri stundu, þ.e. um álagið á kerfinu. Við settum upp samvinnuverkefni með háskólum á svæðinu og tryggðum okkur samstarfssamning við stórt orkufyrirtæki. Fljótlega breyttist þó eignarhald þess orkufyrirtækis og við urðum að snúa okkur annað. Framtíð sólarorku á Indlandi í lok árs 2014 gaf nýr forsetisráðherra Indlands, Narendra Modi, út metnaðarfullt loforð um að setja upp 100 GW af sólarorkuverum fyrir 2022. Stór hluti þeirra sólarorkuvera myndi vera í formi sólarrafhlaðna á þökum venjulegra húseigna sem yrðu tengdar við orkukerfið. Húseigendur fengju svo greiðslu fyrir orkuframleiðslu sína. Þarna sáum við tækifæri. í stað þess að fara gegnum orkufyrirtækin og sannfæra þau um nýjar aðferðir þá myndum við upplýsa þessa áhugasömu húseigendur um orkuframleiðslu sólarrafhlaðna þeirra og orkunotkun húsa þeirra í rauntíma. Þetta myndi vera skref í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.