Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 11
1937 og var þá lengsta hengibnl heirns
allt til ársins 1964. Brúin er gerð úr
stáli og er tæplega 1,3 km löng, 230 m
há og hún hönnuð af Joseph Strauss,
Irving Morrow og Charles Ellis.
Þann 16. maí flugum við til
Mexíkóborgar en Hörn kennari ílaug
heim til Islands. Mexíkóborg er mjög
óhrein borg. Fyrir utan íbúðina okkar
var rosalega stór og falleg verönd
með brunni (reyndar vatnslausum)
í miðjunni. Veröndin var lokuð frá
götunni með risastóru hliði svo
skíturinn fyrir utan truflaði okkur
ekki. Einn daginn var mesta rigning
sem ég hef upplifað. Var skemmtilegt
að finna muninn á loftinu í borginni
eftir regnið en loftið batnaði verulega.
í Mexikóborg skoðuðum við meðal
annars Mannfræðisafnið í Mexikó þar
sem hægt að berja augum upprunalega
sólarsteininn og fræðast um uppruna
indjána þar í landi svo eitthvað sé
nefnt.
Fimmtudaginn 21. maí lá leið okkar
til strandbæjarins Playa del Carmen
þar sem við sleiktum sólina og fórum
í vatnagarðinn Xel-Há þar sem
við snorkluðum, stungum okkar af
stökkpöllum og lágum í hengirúmum.
Tel ég að það hafi verið hápunktur
ferðarinnar. Eg mæli eindregið með
þessum garði fyrir þá sem ferðast
til Playa del Carmen eða nágrennis.
Einnig fórum við í ferð til Chichen
Itza þar sem skoða má rústir borga
Maya indjána.
Þann 27. maí var svo komið að
lokaáfangastað ferðarinnar, Púertó
Ríkó. Þar byrjuðum við á því að
gista inni í miðjum frumskógi. Þar
heimsóttu okkur meðal annars stærstu
kakkaiakkar sem ég hef séð ásamt
litlum krúttlegum eðlum. Við lærðum
að opna kókoshnetur með stein einan
að vopni og fórum á kajökum í Bio
Bay en þar lifa lítil svifdýr sem lýsa
upp sjóinn þegar hann er hreyfður,
ólýsanleg upplifun það! Seinni hluta
ferðar okkar í Púertó Ríkó var dvalið
í höfuðborginni San Juan áður en
ferðinni lauk þann 2. júní. Þaðan
héldu 5 ferðalangar til íslands en tveir
héldu áfram til New York.
Ferðinni er vart hægt að lýsa í orðum
en við lentum í ýmsum ævintýrum,
þar á meðal týndust tveir farsímar en
þeir fundust sem betur fer báðir stuttu
Mynd I. Horft yfir Golden Gate brúna í San
Fransisco.
síðar. Hluti hópsins var stoppaður
af spilltum lögreglumönnum í
Mexíkóborg, ég var bitin af könguló
og endaði á 5 daga lyfjameðferð, við
sungum úr okkur lungun í Karióki og
margt, margt fleira.
Takk, samferðalangar mínir, fyrir
frábæra ferð sem ég mun aldrei
gleyma. Vil ég óska þeim nemendum,
sem fara í sína ferð núna í vor, innilega
góðrar ferðar!