Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 43

Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 43
og áður segir er flugvöllurinn búinn tveiniur flugbrautum; asustur/vestur- flugbraut og norður/suður. Brautirnar nýtast við nánast öll veðurfarsleg skilyrði og eru nógu langar og breiðar til að geta tekið á móti öllum tegundum flugvéla. Norður/ suður-brautin er notuð í u.þ.b. 65% tilfella og er lagt til í Masterplani að gera ráð fyrir flugbraut samsíða henni til þess að auka afkastagetu flugbrautakerfisins. Með tilkomu nýrrar flugbrautar í söntu stefnu verður hægt að taka á loft og lenda á tveimur brautum án þess að þær hafi áhrif hvor á aðra. Ný fiugbraut er staðsett norð/ vestan megin við flugstöð og í nálægð við flughlað til þess að stytta akstursvegalengdir flugvéla og draga þannig úr umhverfisáhrifum. Flugbrautin er 2,5 km löng og 45 m breið en núverandi brautir eru 3 km og 60 m og er því hægt að taka á móti öllum stærðum og gerðum af flugvélum á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að þörf verði fyrir nýja fiugbraut þegar hreyfingar á flugvellinum verða orðnar 40-50 á klst. I dag eru á háannatímum um 22 hreyfingar á klst. en mest hafa 29 hreyfingar átt sér stað á sama klukkutíma á Kefiavíkurflugvelli. Ný flugbraut er afar kostnaðarsamt isavia mannvirki og verður ýmsum leiðum beitt samkvæmt Masterplani til þess að fresta þeirri framkvæmd eins lengi mögulegt er. Aðferðir í ílugumferðarstjórn er hægt að bæta til þess að afgreiða íleiri flugvélar við flugtök og lendingar en sömuleiðis er hægt að fara í aðgerðir til þess að auka flæði um flugvöllinn áður en til nýrrar flugbrautar kæmi. Svokallaðar Rapid Exit Taxiways (RET) eru afreinar af flugbrautum sem bjóða upp á að flugvélum sé ekið út af flugbraut í stað þess að aka brautina á enda. Gert er ráð fyrir fjórum RET, tveimur á hvorri braut, sem liðum í því að seinka framkvæmd við nýja flugbraut. Flugstöð Umferð um Keflavíkurflugvöll hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár. Rúmar 2 milljónir farþega fóru um flugvöllinn árið 2010 og tæpar 5 milljónir 2015. Gert er ráð fyrir að um 6,7 milljónir farþega muni fara um flugvöllinn árið 2016. Aukning af þessari stærðargráðu veldur miklu álagi á alla innviði flugvallarins. Flugstöðin er þar engin undantekning og líklega það mannvirki sem verður fyrir mestum áhrifum af aukningunni. Mögulegir flöskuhálsar í flugstöð eru margir, enda um mjög flókna og tæknilega byggingu að ræða. Masterplan Keflavíkurílugvallar tekur frá svæði fyrir ákjósanlegustu þróun flugstöðvarinnar með lágmarks tilliti til nærliggjandi mannvirkja. Til þess að þróun flugstöðvarinnar og flugvallarins verði með hag starfseminnar að leiðarljósi þarf að nálgast viðfangsefnið með því sjónarmiði. Uppbygging flugstöðvarinnar mun miða að því að halda gönguvegalengdum stuttum fyrir farþegann og að halda þjónustustigi í hámarki. Mikilvægt er að viðhalda nálægð við verslunarsvæði og huga að öllu aðgengi vegna framkvæmdarinnar sjálfrar á uppbyggingartíma. Mörg verkefni eru í gangi á Keflavíkurflugvelli þessa stundina og mörgum hefur verið lokið nýlega til þess að bæta þjónustu og auka flæði uin flugvöllinn. Framundan eru risastór, spennandi verkefni við stækkunarframkvæmdir flugstöðvarinnar og nýjar byggingar til þess að anna farþegatjölgun til framtíðar. Ferðaþjónustan er sívaxandi atvinnugrein á íslandi og til þess að geta haldið áfram á þeirri vegferð að fjölga ferðamönnum til íslands og efla millilandaflug um Keflavíkurflugvöll verður að bæta innviði. Stækkun Keflavíkurflugvallar er þar lykilatriði og verður mikil þörf fyrir hönnuði til þess að koma að þessari uppbyggingu næsta áratuginn. www.isavia .is/masterplan Hönnuðir masterplans Keflavíkurfiugvallar voru Nordic Ojflce of Architecture frá Noregi. Þeim til aðstoðar voru Cowi A/S frá Danmörku og Alta ráðgjöf(IS). 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.