Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 17

Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 17
ÞG-VER FRAMKVÆMDIR ÞG Verk hefur á umliðnum árum byggt hundruð íbúða fyrir almennan íbúðamarkað, sömuleiðis hefur félagið þróað og byggt fjölbreytt atvinnuhúsnæði og tekið að sér fjölmörg stórverkefni á útboðsmarkaði. FYRIRTÆKIÐ - ÞG VERK ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H Gissurarsyni sem er enn þann dag í dag forstjóri og eigandi félagsins. Félagið er byggt upp á traustum grunni og hefur staðið af sér öll áföll í íslensku efnhagslífi sem og íslenskum byggingariðnaði og starfar enn á upprunalegri kennitölu. Markmið félagsins hefur ávallt verið að skila góðu verki til sinna viðskiptavina á íbúðamarkaði sem og útboðsmarkaði, að stunda traust og örugg viðskipti og uppfylla væntingar viðskiptavina. Á annað þúsund fjölskyldna búa í dag í húsnæði frá ÞG Verk og u.þ.b 700 íbúðir eru fyrirhugaðar í byggingu á næstu árum. Gæðakerfi ÞG Verk verndar hagsmuni kaupenda en ávallt er gerð sameiginleg úttekt á hverri fasteign fyrir afhendingu. Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina byggt atvinnuhúsnæði sem hýsir margvíslega starfsemi. ÞG Verk hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum á útboðsmarkaði og meðal verkefna eru hátæknisetur lyfjafyrirtækisins Alvogen, höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, stærsta prentsmiðja landsins fyrir Morgunblaðið og virkjanir á Hellisheiði og Nesjavöllum. Félagið hefur áunnið sér traust opinberra aðila og stórfyrirtækja með skipulegu vinnulagi, skilum á réttum tíma, vönduðu verki og öruggum viðskiptum. Hjá fyrirtækinu er starfrækt gæðaráð og starfandi gæðastjóri. í gegnum allt byggingarferlið eru gerðar reglulegar úttektir á öllum verkþáttum. VIRKJANIR ÞG Verk hefur sinnt margvíslegum framkvæmdir við jarðhitavirkjanir, meðal annars sem aðalverktaki við fyrsta og annan áfanga Hellisheiðarvirkjunar og við stækkun Nesjavallarvirkjunar. í dag er ÞG Verk í sókn, bæði ef litið er til eigin framkvæmda á íbúðar og atvinnuhúsnæðimarkaði og verkefna á útboðsmarkaði. Lykillinn að farsælum rekstri er afburða starfsfólk og er fyrirtækið stolt af þeim trausta og hæfa hópi fólks sem starfar fyrir félagið í dag. Fyrirtækið leggur áherslu á góða starfsmanna aðstöðu og aðbúnað til að tryggja öryggi og starfsmannaánægju. ÞG Verk er sterkt félag sem skilar góðu verki og faglegum vinnubrögðum. Allt frá stofnun hefur það verið meginmarkið félagssins að skila góðu verki, stunda örugg viðskipti og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Þorvaldur Gissurarson Forstjóri ÞG Verk ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt mikinn fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru okkar einkunnarorð. Fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við sína viðskiptavini. NÝ HEIMASÍÐA | FASTEIGNAVEFUR ÞG VERK www.tgverk.is

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.