Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 26
Mynd 1. Allar framkvæmdir.
Mynd 2. Lágmarksframkvæmdir.
Umferðarspá
svæðisskipulags
Til grundvallar umferðarspám voru
lagðir tveir uppbyggingarkostir
samgöngumannvirkja;
„lágmarksframkvæmdir“ og „allar
framkvæmdir“ (sjá myndir 1 og 2):
Lágmarksframkvæmdir -
samgöngubætur sem þegar hafa
verið ákveðnar eða ráðgert að
ráðast í á næstu árum
auk Öskjuhlíðarganga.
q Allar framkvæmdir - flestar stærri
vega- og gatnaframkvæmdir sem
tilgreindar eru í Svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins 2001 -2024
og í tillögum sveitarfélaganna til
vegaáætlunar árið 2007.
Fyrir nánari útlistun á
framkvæmdum er vísað í fylgirit
svæðisskipulagsins nr. 9 [2]. Fyrir
hvorn uppbyggingarkost voru gerðar
umferðarspár með og án tillits til
breytinga á ferðavenjum.
Obreyttar ferðavenjur miðast við:
q Núverandi ferðamynstur, að
bflferðir pr. íbúa verði jafnmargar
árið 2040 og þær voru 2012.
q Núverandi hlutdeild ferðamáta
(einkabíll, almenningssamgöngur.
gangandi/hjólandi) haldist óbreytt
Breyttar ferðavenjur miðast við:
0 Hlutdeild bílferða pr. íbúa dragist
saman úr 77% (2012) í 58%
árið 2040
q Þreföldun á hlutdeild
almenningssamgangna, úr 4%
(2012) í 12% árið 2040
q Hlutdeild gangandi og hjólandi
aukist úr 19% (2012) í 30%
árið 2040
Til að styðja við breytingu á
ferðavenjum er sú stefna mörkuð
í svæðisskipulaginu að 2/3 íbúa
höfuðborgarsvæðisins búi innan
svokallaðra samgöngumiðaðra
svæða, og þannig sé þétt
byggð við allar aðalleiðir
almenningssamgangna. Með
góðu aðgengi íbúa að öflugum
almenningssamgöngum er raunhæft
að auka hlutdeild þeirra. Jafnframt
er miðað við að um 80% verslunar-
og skrifstofuhúsnæðis sé innan
samgöngumiðaðra svæða.
Tafla 1. Heildartölur úr niðurstöðum allra sviðsmynda umferðarspár.
Heildar aksurstími [klst] Heildar- akstur [kml Meðal- ferðatími [km[ Meðallengd ferða [km] Aukning á ferðatíma vegna umferðarálags [klst] Meðltöf pr. ferð [mín]
Grunnár 2012 82.700 4.235.200 5,82 4,97 9.900 0,70
Spátilfelli
Lágmarkframkvæmdir
1. Óbreyttar ferðavenjur 143.400 6.535.800 7,39 5.62 25.100 1,30
2. Breyttar ferðavenjur 119.700 5.823.200 7,21 5,85 14.900 0.90
Allar framkvæmdir
3. Óbreyttar ferðavenjur 135.700 6.524.200 7,00 5.61 17.600 0,91
4. Breyttar ferðavenjur 115.000 5.813.200 6,93 5,84 10.300 0,62
26