Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 28
Vindorka
Tœkifœri og áskoranir
Endurnýjanlegir og umhverfisvænir
orkugjafar hafa rutt sér til
rúms undanfarin ár og er þróun
þeirra óhjákvænrileg til að
framtíðarsamband manns og
umhverfis geti orðið sem best.
Otal tækifæri felast í rannsóknum
og þróun á endurnýjanlegum
orkugjöfum, bæði hérlendis og á
heinrsvísu, og ljóst að slík orkunýting
er nú þegar orðin eitt af stóru
verkefnunum sem okkar kynslóðir
glíma við.
Nýting vindorku hefur aukist
gríðarlega á heimsvísu síðastliðin
ár og var til að mynda rúmum 63
GW bætt við árið 2015. Uppsett afl í
heiminum í lok árs 2015 var því rúm
430 GW, samtals um 17% vöxtur
frá árinu áður. Til samanburðar þá
var 14 GW bætt við á síðasta ári
og því uppsett afl í Evrópu tæp 148
GW í lok árs 2015, samtals unr
10% vöxtur frá árinu áður. Hlutur
vindorku í raforkunotkun Evrópu
er í dag um 11.4% og er markmiðið
að auka hlut þess í tæp 16% fyrir
2020. Tæknin er í stöðugri þróun og
hafa framleiðendur vindmylla bætt
hönnunina til muna. Sem dæmi eru
gírkassalausar vindnryllur að ryðja
sér til rúms, en nreð því að losna við
gírkassann er bæði dregið úr sliti,
viðhaldskostnaður lágmarkaður,
líftími lengdur og dregið
úr hljóðmengun.
Nýir tímar
ísland hefur að geyma ýmsar
endurnýjanlegar orkulindir og
hefur þróun vatnsaflsvirkjana til að
mynda staðið yfir síðan snemma
á 1. áratug síðustu aldar. Þá hafa
rannsóknir og þróun á raforkuvinnslu
með jarðvarma staðið yfir í nær
hálfa öld, fyrst á Norðausturlandi
seint á 7. áratugnum. Hingað til
hafa jarðvarmi og vatnsafl verið
grunnstoðir raforkuvinnslu hér á
landi og geta Islendingar stoltir sagt
að um 85% af heildarorkunotkun
landsins sé fullnægt með orku frá
endurnýjanlegum orkugjöfum.
Vegna hnattrænnar legu landsins
eru möguleikar á nýtingu vindorku
miklir og hefur áhugi fyrir því farið
ört vaxandi undanfarið. Landsvirkjun
hefur nú þegar reist vindmyllur við
Búrfell í tilraunaskyni og sömuleiðis
Birta Helgadóttir
Umhverfis- og
orkuverkfræðingur hjá EFLU
hala tvær vindmyllur verið settar
upp í Þykkvabæ. Einnig hefur
færst í aukana að bæði innlendir
og erlendir aðilar sýni áhuga og
nálgist sveitarfélög til að falast eftir
landsvæðum fyrir slíka orkuvinnslu.
Þessi orkunýting hefur ýmsa kosti
og varanlegu umhverfisáhrifin
eru tiltölulega lítil þar sem
framkvæmdin er svo gott sem
afturkræf, þó að sjónræn áhrif á
rekstrartíma séu talsverð. Nú er
vatnsorkan undirstaðan í raforkukerfi
landsmanna og hefur hún þann
kost að hægt er að geyma orku í
miðlunarlónum. ísland er vindasamt
land og á veturna þegar minnst
rennur í miðlunarlónin þá blæs
vindurinn hvað mest. Vatnsaflið og
vindorkan fara því einstaklega vel
saman í rekstri. Aðstæðum hér á
landi svipar um sumt til aðstæðna
á hafi úti, landslagið er slétt og fátt
sem dregur úr vindstyrknum. Víða
er meðalvindur tiltölulega hár,
yfirborðshrýfi lítið og því mun meiri
orkugeta fyrir sama vindstyrk. Það er
því tilvalið að nýta vindauðlindina.
En til þess að það gagnist sem skyldi
þá þarf að standa rétt að málum.
Fyrstu skrefin
I upphafi er mikilvægt að átta sig
á umfangi verkefnis og spyrja
lykilspurninga. Athuga þarf hvort
nægilegur vindur er til staðar, hvernig
eigi að velja réttan stað fyrir vindlund
með tilliti til vindafars, samfélags og
umhverfis, hvaða vindmyllur eigi að
velja, hvaða rannsóknir þurfi að fara
fram, hvort fjárhagsleg hvatning sé
til staðar fyrir verkefnið og hvernig
viðhaldi og rekstri verði háttað.
Góðar vindmælingar eru mikilvægar
þegar kanna skal hagkvæmni
vindorkuverkefna. Vindurinn
getur verið síbreytilegur milli
ára og góðar langtímamælingar á
vindafari, hitastigi, loftþéttleika og
vindáttum draga því úr óvissu og
tryggja hagstæðari fjármögnun. Til
að lágmarka óvissu í mælingunum
sjálfum þarf að staðsetja mælitækin
rétt og gæta þess að þau uppfylli
alþjóðlega staðla. Mælingar ráða
miklu um hvar vindmyllur eru
staðsettar, hversu háar þær eru, hver
stærð þeirra er og lengd spaða, svo
eitthvað sé nefnt. Allir þessir þættir
hafa áhrif á sýnileika, hljóðvist og
fleira og því mikilvægt að
vanda til verka.
I mörg horn er að líta og ekki nóg
að sterkur og stöðugur vindur sé til
staðar. Einnig er mikilvægt að til sé
viðeigandi lagaumgjörð, staðlar og
reglur sem styðjast á við í slíkum
verkefnum. Þar þarf til að mynda að
tilgreina þau leyfi sem þurfa að liggja
fyrir á ýmsum stigum viðkomandi
verkefnis og leggja áherslu á vönduð
vinnubrögð þar sem hagsmunir
samfélagsins og sjálftærni eru hafðir
að leiðarljósi.
Ljóst er að miklar áskoranir fylgja
vindorkuverkefnum hér á landi, bæði
fyrir stjórnvöld og samfélagið í heild,
en að sama skapi má sjá ótal tækifæri
í uppbyggingu þessa orkukosts. Það
þarf að stíga varlega til jarðar þegar
kemur að því að taka ákvarðanir um
nýja tegund orku- og landnýtingar
hérlendis. Þá þarf að undirbúa
stjórnvöld, sveitarfélög, almenning
og aðra sem eiga hlut að máli til að
takast á við áskoranirnar sem felast
í þessu nýja viðfangsefni. Vinna
þarf að þessum málum á landsvísu,
með því að móta stefnu og hanna
regluverk eða umgjörð sem hægt er
að styðjast við ef til
uppbyggingar kemur.
Askoranir
Þó svo að fyrir liggi stefna
stjórnvalda í orkumálum og
margvíslegar reglur um undirbúning
framkvæmda, liggur hvergi
fyrir opinber stefna um nýtingu
vindorku á íslandi né stefna um
forsendur fyrir vali á svæðum fyrir
slík mannvirki, en slíkt þekkist
þó í nágrannalöndum, Skotlandi,
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
þótt víðar væri leitað. Mikilvægt
er að bæta úr þessu sem fyrst til að
tryggja að almannahagsmunir séu
hafðir að leiðarljósi og koma í veg
fyrir uppbyggingu á óæskilegum
svæðuin. Vinna þarf að stefnumörkun
og setningu laga og reglugerða, sem
og að hanna ramma sem stjórnvöld
og sveitarfélög geti unnið eftir.
Styrkja þarf til muna þekkingu á
viðfansgsefninu og miðla henni
inn í menntakerfið til að tryggja að
þekkingin þróist og aukist. Þannig
verða vísindin daglegur hluti af tilvist
okkar allra.
Ríki og sveitarfélög vinna í
sameiningu að sjálfbærni í orkuöflun
hérlendis. Ríkisvaldið þarf að smíða
leiðbeinandi regluverk sem tekur tillit
til vindafars og hagkvæmni, fjarlægð
vindmylla frá þéttri byggð, aðkomu
og tengingu við dreifikerfi og
flutningskerfi, áhrif á verndarsvæði
og aðra umhverfis- og samfélagslega
þætti. Slík stefnumörkun getur t.d.
nýst sem verkfæri til að eyrnamerkja
hentug eða óhentug svæði og er afar
mikilvæg til að hægt sé að vinna úr
fyrirspurnum frá aðilum sem sýna
áhuga, á faglegan hátt.
Að auki þarf að útbúa regluverk
um gjaldtöku, leigugjald fyrir land,
auðlindagjald og fasteignagjöld
svo eitthvað sé nefnt. Ríkið þarf
að taka afstöðu til þessara atriða
og stuðla að því að sveitarfélög og
samfélagið í heild hljóti ávinning af
VERKFRÆÐISTOFA