Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 35

Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 35
Samstarf við önnur nemendafélög I stjórn FV sitja allir fimm stjórnarmeðlimir hvers nemendafélags verkfræðideildanna og því koma 20 manns að ákvarðanatöku félagsins. Fljótt mynduðust sterk tengsl meðal þeirra, Naglar, Nörd, VÍR og Vélin unnu vel saman og skipulögðu iðulega sameiginlega viðburði í og eftir vísindaferðir. Útilega FV sumarið 2015 heppnaðist með ágætum en hún var haldin við Flamragarða í Landeyjum, nálægt Seljalandsfossi, í júlí. Gott veður lék við gesti tjaldsvæðisins og sumarið angaði af ferskum verkfræðinemum í fríi. I útilegunni kepptu nemendafélögin í mörgum þrautum, svo sem flunky bolta, en enginn man hvernig leikar fóru (Naglar unnu ekki). Að lokum var grillað, borðað, drukkið og sungið fram á nótt. Útilegan var ekki notuð sem tjáröflun eins og Flallgeirsey forðum en horft meira á hag allra nemenda sem tóku þátt í ferðinni óháð nemendafélagi og að lágmarka kostnað þeirra. Stefnan er sett á að halda útilegu Náttverks sumarið 2016 en einskær vilji um styrkingu tengsla nemenda við VoN ríkir meðal sitjandi stjórnar Náttverks. Náttverk, hagsmunafélag nemenda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði var öflugt bæði í stefnumótun, þátttöku í nefndum sviðsins og skipulagningu. Ég sat fyrir hönd Náttverks í stjórn VoN og það hefur verið ein besta og mesta reynsla sem ég hef fengið í öllu náminu. Það er virkilega gefandi að fylgjast með og hafa áhrif á þróun mála á sviðinu og vil ég því þakka stjórninni sérstaklega fyrir að sýna nemendum skilning og útskýra fyrir okkur mál sem við vitum lítið um. Einnig má taka fram að fyrstu drykkjuleikar Náttverks voru haldnir hátíðlegir en þeir hafa verið í pípunum um árabil. Nemendafélög VoN kepptu þar um farandbikar. Skólaárið Viðburðaríkur vetur er að baki. Naglar fóru að vana í skemmtiferðir um víðan völl og heimsóttu fjölbreytta flóru fyrirtækja og stofnana. Það sem stendur upp úr eftir hvert ár eru lengri ferðirnar og þá sérstaklega skíðaferðin. Skíðaferðin á sér stað djúpt inni í hjarta hvers Nagla en í henni heimsækjum við Akureyrarbæ með hálfsystkinum okkar í VÍR. Gist er í bústöðum við Ytri-Vík og keyrl inn á Akureyri á laugardeginum þegar haldið er í tjallið, sund og svo í vísindaferð. Ekki er hægt að minnast á skíðaferðina án þess að tala um heimsóknina í brugghús Kalda á Árskógssandi. Þar er tekið vel á móti Nöglum og líður mörgum eins og þeir séu að koma heim eftir langa fjarveru. Um bjórdrykkju nemendafélaga hefur lengi verið sú regla í gildi að magn sé mikilvægara en gæði. Lærdómurinn úr Kalda er sá að gæðin geta verið lykilþáttur séu þau nægilega mikil. Lengi hafa verkfræðinemar einungis drukkið úr dönskum grænum bjórdósum en aukinn fjö 1 breytileiki í vínafurðum einkenndi námsárið að þessu sinni. Það kom meðal annars til vegna tregðu söluaðila í samningaviðræðum. Útkoman úr þeirri tilraun var í raun jákvæð og virðist stefna á það langtímamarkmið, sem íslensk bjórmenning þokast í átt að, gæði fram yíir magn og mögulega Díódulýsinq frá <É*SloanLED VT Leoders In LEO Technology www.sloanled.com Fjölbreyttir notkunarmöguleikar inni og úti, ýmsar lausnir, sérhönnuð í skilti, í kappalýsingar eða til að uppfæra lýsingu í eldri skiltum, einnig stök Ijós, spennar og nauðsynlegir fylgihlutir Gunnar Eggertsson hf. heimilisfang Sundagarðar 6 104 Reykjavík, lceland sfmi. +354 525 3800 fax +354 525 3810 netfang veffang ge@ge.is www.ge.is

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.