Upp í vindinn - 01.05.2016, Qupperneq 60

Upp í vindinn - 01.05.2016, Qupperneq 60
Hefðum við átt að gera þetta fyrir 20 árum síðan? Já. En gerum þetta í dag í staðinn og eftir 20 ár verður það frábært!“ Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Kristín átti sæti í stýrihóp fyrir nýtt aðalskipulag Reykjavíkur á síðasta kjörtímabili og sat samtímis í Umhveríis- og samgöngunefnd Reykjavíkurborgar. „Ég leiddi umhverfis- og auðlindastefnuna, sem er hluti af aðalskipulaginu. Það var ótrúlega skemmtileg vinna sem byggir mikið á okkar námi; að leggja áherslu á blágrænar ofanvatnslausnir, endurheimt votlendis og stefnumótun í samgöngum. Við tókum einnig saman markmið okkar í loftslagsmálum og settum þetta allt saman í umhverfis- auðlindastefnu um hvernig við sæjum borgina þróast á sjálfbæran hátt í framtíðinni.“ Er eitthvað í aðalskipulaginu sem þú hefðir viljað sjá gert öðruvísi? „Það er auðvitað hellingur sem ég hefði viljað sjá gerðan á annan hátt, aðalskipulagið er ein stór málamiðlun. Ég hefði viljað vera miklu róttækari og taka betur á samgöngumálum og setja stífari forgangsröðunarkröfur á uppbyggingu svæða.“ „Það sem hefur eyðilagt allar aðalskipulags- áætlanir síðustu ára er í raun skortur á eftirfylgni.“ Hún telur þó að núna skipti mestu máli að það sé unnið eftir aðalskipulaginu. „Það sem hefur eyðilagt allar aðalskipulagsáætlanir síðustu ára er í raun skortur á eftirfylgni.“ Sem dæmi um það segir hún að þétting byggðar hafi verið hluti af síðustu áætlunum en að á sama tíma hafi borgin byggt Norðlingaholt og Úlfarsárdal. „Nú fórum við að minnsta kosti mjög langt í því að draga „Urban growth boundary“.“ Kristín segir að stærsta áskorunin í innleiðingu á aðalskipulaginu verði Reykjavíkurflugvöllurinn. „Þetta aðalskipulag hangir á því að flugvöllurinn fari. Það er ekki til neitt sem heitir að styðja aðalskipulagið en vilja samt að flugvöllurinn standi. Þá þarf að búa til nýja áætlun því þessi áætlun gengur ekki upp sem heildarmynd ef flugvöllurinn fer ekki.“ Hún segir að flugvöllurinn verði að víkja ef borgin ætli að halda áfram að þétta byggð. Þétt byggð sé undirstaða þess að góðar almenningssamgöngur verði raunveruleiki margra sem búa hérna því ekki sé hægt að halda uppi háu þjónustustigi eins og staðan er í dag. Er einhver horg sem þið notið til samanburðar við Reykjavík? Kristín segir að þau beri Reykjavík saman við margar borgir af svipaðri stærðargráðu og breiddargráðu, eins og Þrándheim og Álaborg. En við undirbúning aðalskipulagsins liafi meðal annars verið horft til Portland í Oregon-fylki Bandaríkjanna. „Það var mjög spennandi fyrir okkur vegna þess að við getum litið til spennandi borga í Evrópu eins og Stokkhólms og Kaupmannahafnar en vandamálið er að þau „fokkuðu“ aldrei upp. Við lentum í því sama og margar bandarískar borgir að við byggjumst upp eftir að einkabíllinn er orðinn sjálfsagður hlutur á hverju heimili, svo hugsanarhátturinn var allt annar. Það sá enginn neitt neikvætt við einkabílinn, hann var frelsið og það var frábært.“ „Það sá enginn neitt neikvætt við einkabílinn, hann var frelsið og það var frábært Kristín segir að þar sem Reykjavík hafi byggst að stórum hluta upp eftir 1970, þegar Breiðholtið er að verða til og uppbyggingin í kjölfarið miðaðist við einkabílinn. „Þess vegna er gott að horfa til borga eins og Portland sem missti skipulagið svolítið úr höndunum. I borginni var mjög dreifð byggð og einu samgöngurnar voru einkabíllinn. Stjórnvöld í borginni hafa snúið blaðinu við og verið leiðandi í þessari breytingu borga í Bandaríkjunum. Margir líta til þeirra og hvernig þau breyttu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.