Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 61
samgöngum og bönnuðu alla dreifða
byggð. Þau náðu að breyta allri
ímynd borgarinnar og það var algjört
„success“.“
Telur þú að breyta verði
hugsunar- hœtti Islendinga
til að breyta áherslum í
samgöngumálum?
Kristín segir að það þurfi vissulega
að breyta hugsunarhætti fólks en að
borgin þuríi einnig að koma til móts
við almenning með þjónustu. „Ég
sé til dæmis að um leið og við erum
búin að stoppa útþenslu byggðarinnar
þá fer fjárfestingin að leita inn á
við. Kaffihús og veitingastaðir vilja
núna leita inn í litlu hverfin. Nú
þegar við í Reykjavrk erum ekki að
eyða öllum peningunum okkar í ný
gatnakerfi í nýjum úthverfum þá er
farið að endurgera götur og torg inn í
hverfunum.“
„Ég sé til dæmis
að um leið og við
erum búin að stoppa
útþenslu byggðarinnar
þá fer fjárfestingin að
leita inn á við
Hún segir það vera mjög mikilvægt
að öll nauðsynleg þjónusta sé til
staðar innan hverfa og að það
auðveldi fjölskyldum að tileinka sér
bíllausan lífstíl. „Það er fullt af fólki
sem þarf að fá sér bíl vegna þess að
það fær ekki leikskólapláss í hverfinu
sínu og þarf að keyra á einkarekinn
leikskóla eða til dagmömmu sem
er langt í burtu. Þetta eru hlutir sem
skemma fyrir þér í að reyna að lifa af
án bfis. Það þarf allt að vinna saman
og við þurfum til dæmis að fara í
átak til að tryggja það að börnin fái
þjónustu í sínu hverfi.“
Kristínu finnst nauðsynlegt að bjóða
almenningi þann kost að sleppa
einkabílnum til að auka lífsgæði.
Henni þykir lífsgæði ekki fólgin
í því að þurfa að keyra langar
vegalengdir til að sækja börn í skóla
og tómstundir eða að versla í matinn,
því sé bfilaus lífstíll ekki síður
mikilvæg geðrækt en líkamsrækt og
umhverfismál.
/
„Eg lít ekki á þetta
þannig að verið sé
að pína alla í að
sleppa bflnum, þetta
eru lífsgæði sem
við þurfum að gera
fleirum kleift að
velja og upplifa.“
„Allur heimurinn verður ósjálfrátt á
herðum þér. Ég lít ekki á þetta þannig
að verið sé að pína alla í að sleppa
bfinum, þetta eru lífsgæði sem við
þurfum að gera fleirum kleift að velja
og upplifa.“
Næstu skref
Eftir umræður um framtíð
Reykjavíkurborgar spurðum við
Kristínu um framtíð hennar í pólitík.
Hún segist vera óviss með næstu
skref. „Ég er á tímamótum. Ég er
að fara að eignast mitt fyrsta barn
núna í sumar og er á leiðinni í
fæðingarorlof. Ég fer inn í það með
opnum hug.“ Hún segist hafa mjög
gaman að því að vinna í pólitík en
að það sé einnig mjög lýjandi og að
stundum sé gott að breyta til. „Mér
finnst skipabransinn mjög spennandi
og ég væri líka til í að vinna hjá
Bílastæðasjóði, Strætó bs., Eimskip
og lleiru í þeim dúr.
s
„Eg væri til í að fá
að vera með í því
að móta framtíðina
í samgöngumálum,
mér íinnst það mjög
mikilvægt.“
Ég væri til í að fá að vera með
í því að móta framtíðina í
samgöngumálum, mér finnst það
mjög mikilvægt.“
Við báðum Kristínu að gefa
verkfræðinemum nokkur ráð fyrir
framtíðina
„Ég er bara með eitt ráð. Ef þú prófar
eitthvað og þér finnst það leiðinlegt,
hættu og farðu að gera eitthvað
annað! Ég held að það sé engin
ástæða til þess að vera í vinnu sem
þú hefur ekki áhuga á eða kveikir
ekki eld í brjósti þér því það eru svo
margir möguleikar. Þú getur alltaf
fundið þína ástríðu einhvers staðar.“
Kristín telur enn fremur að það sé
óþarfi að efast um að hafa valið rangt
nám. „Þú getur alltaf gert eitthvað
annað með nákvæmlega þetta nám.
Ekki vera einhvers staðar þar sem þér
leiðist!“
s
„Eg er bara með eitt
ráð. Ef þú prófar
eitthvað og þér finnst
það leiðinlegt, hættu
og farðu að gera
eitthvað annað!“
61