Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 62

Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 62
Brýr yfir breiða íirði Noregur er fjörðum skorið land og vegakerfið þar hefur því víða verið háð ferjusamgöngum. Norska vegagerðin byrjaði árið 2010 að rannsaka möguleikana á að koma á ferjulausum vegi milli Kristiansand í suðri til Þrándheims. Þar á milli eru önnur tvö stór þéttbýlissvæði, Stafangur og Björgvin, ásamt ýmsum minni bæjum svo sem Haugasund, Alasund, Molde og Kristiansund. Vegurinn sem tengir þessi þéttbýlissvæði saman er Evrópuvegurinn E39, sem nær frá Þrándheimi í Noregi til Álaborgar í Danmörku þar sem hann tengist E45 sem liggur suður til Þýskalands. Þannig tengir E39 vegakerfi Noregs við vegakerfi Evrópu með ferju sem gengur á milli Hirsthals í Danmörku og Kristiansand í Noregi. Vegalengdin frá Kristinsand til Þrándheims er um 1060 km. Á þeirri leið eru nú átta ferjur sem er það mesta sem þekkist á nokkrum vegi í Evrópu. I dag tekur u.þ.b. 20 tíma að keyra þessa leið. Þar af eyða vegfarendur að minnsta kosti þremur klst. samtals í ferjusiglingar, ef þeir eru svo heppnir að hitta á að vera við Jónas Þór Snæbjörnsson Prófessor á byggingasviði við Háskólann í Reykjavík ferjulægin á réttum tíma. Kostnaður vegfarenda við að keyra þessa leið í dag er um 150 ÍSK/km [1,2]. í norsku samgönguáætluninni fyrir tímabilið 2014 til 2023, staðfesti norska stórþingið það markmið að Evrópuvegurinn E39 yrði ferjulaus fyrir árið 2030. Síðan þá hefur Norska vegagerðin unnið markvisst að því að gera það markmið að veruleika. Með ferjufríum vegi ásamt öðrum endurbótum á veglínum og öryggi vegarins þannig að hægt verði að hækka hámarkshraða í 90-100 km/klst., þá er áætlað að heildar ferðatíminn verði rúmlega 11 klst. Kostnaðurinn við umræddar framkvæmdir er í heild áætlaður 130 milljarðar norskra króna eða u.þ.b. 2000 milljarðar íslenskra króna [1, 2]. Verkefninu Ferjufrír E39 er skipt í fjögur undirverkefni: Romsdalsfjorden Sulafiorden Vartdalsfjorden Nordfjorden Sognefjorden Bjwnafjorden 3oknafjorden ITRONDHEIM KRISTIANSANDI Halsaqorden Julsundet Mynd 1. Evrópuvegurinn E39, eftir vesturströnd Noregs milli Kristiansand í suðri og Þránd- heims ínorðri. Heildarvegalengd 1100 km; átta ferjuleiðir í dag, þverunarkostnaður 25 bilijón USD næstu 20 ár (2014-2033) (Oiav Ellevset, 2014 [3]). q Samfélag (Samfunn), sem á að kanna hvaða áhrif verkefnið mun hafa á búsetuskilyrði og fyrirtækjarekstur á þeim svæðum sem tengjast E39. q Þverun fjarða (Fjordkryssing), sem á að leita tæknilegra lausna við þverun á breiðum og djúpum fjörðum. q Orka (Energi), sem á að kanna möguleikana á að tengja verkefnið við orkuöllun frá vindi, sjávarstraumum og öldum, m.a. til að afla orku fyrir rafmagnsbíla og rekstur mannvirkjanna. q Framkvæmd og samningar (Gjennomfpringsstrategier og kontraktsform), sem á að kanna hvernig best er að standa að samningagerð og framkvæmdastjórnun stórra verkefna af þessu tagi.

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.