Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 523 skólasjúkrahús. „En þetta var mikið gæfuspor.“ Sigríður segir sérnámið hér heima skipta heilsugæsluna miklu. Ramminn sé stífur og handleiðararnir orðnir reyndir. „Ég held engu að síður að við höfum gott af því að fara eitthvað út. Jafnvel þótt það sé eitthvað styttri tími. Aðeins til að sjá eitthvað annað. Við þurfum að vera dugleg að fara á þing og fundi til að auka víðsýnina,“ segir hún. Sigríður Dóra ræðir í hlaðvarpinu sem finna má á Soundcloud og Spotify vottorðafarganið, yfirflæði Heilsuveru og langa biðlista að geðheilbrigðisteym­ inu. Einnig það sem heilsugæslan lærði af COVID. Miklar breytingar urðu og starfsemin litaðist verulega af þessum heimsfaraldri. „Við förum aldrei á sama hraða og áður [í móttökunni] af því að verkefnin hafa breyst svo mikið. Þessi einföldu, fljótafgreiddu mál sem voru þegar ég var að hefja störf sjást ekki lengur. Öll erindi eru þung úrlausnar og það þarf að hugsa um marga þætti. Við erum því ekki að keyra móttökuna á heilsugæslunni eins hratt og var því erindin eru annarskon­ ar.“ Þéttir og hraðir dagar En hvernig er þá álag innan heilsugæsl­ unnar? „Hjá okkur horfumst við í augu við það að unga fólkið vill fyrst og fremst vinna dagvinnutíma. Það vill ekki vinna frameftir öll kvöld eða langt frameftir með síðdegisvaktir.“ Vinnuum­ hverfið og vinnutíminn sé því lagaður að því. „Við tökum því þétta og hraða daga en vísum ekki fólki á síðdegisvaktir.“ Sigríður Dóra hefur gegnt ýmsum félags­ og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina; fyrir Læknafélag Reykjavíkur, Félag íslenskra heimilislækna og Félag yfirlækna á heilsugæslustöðvunum. Þá fór hún fyrir nemendum í MR, Inspector Scholae: Hvers vegna hefur hún kosið að beita sér? „Það hljómar nú kannski ekki trúverðugt en það er ekki það að ég þurfi alltaf að stýra og stjórna. Ég sótti ekki um þetta forstjórastarf af því að ég hafi svo gríðarlegan metnað til að ná í þenn­ an titil. Minn metnaður hefur alla tíð staðið til þess að hlutirnir séu vel gerðir. Ég hef alltaf litið þannig á sem heimilis­ Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún útskrifaðist úr MR 1979, læknisfræði 1985 og fékk sænskt sérfræðipróf í heim- ilislækningum árið 1993. Hún var framkvæmdastjóri lækninga áður en hún varð forstjórinn. Mynd/gag Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar nú að læknum með erlendan bakgrunn til að mæta þörfum íbúa með erlendan bakgrunn. Sigríður Dóra Magnúsdóttir nýr forstjóri segir ný­ búa fjölbreyttan hóp. „Við sjáum að útlendingar leita á vaktþjónustur því þeir þekkja ekki kerfið, eru óöruggir um stöðu sína. Þeir biðja um vottorð því þeir eru óöruggir í sinni vinnu. Þeir hafa sumir fjölþættan heilsuvanda sem við þurfum að mæta og við þurf­ um að sinna þeim betur,“ segir hún í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. „Við erum að reyna að ráða inn erlenda lækna, lækna sem tala önnur tungumál, til að mæta þessum hópi. Þetta er það sem þjóðfélagið þarf að hugsa betur um: Hvernig við tökum á móti fólki sem býr hér og er Íslendingar en með annan bak­ grunn.“ Heilsugæslan hefur staðið í ströngu við móttöku flótta­ manna síðustu misseri. Nokkur hundruð skjólstæðingar fóru á stuttum tíma í nokkur þúsund. Sett hefur verið upp aðstaða í Domus Medica á Eiríksgötu. „Við þurftum að hugsa alla þjónustu upp á nýtt og breyta allri nálgun. Það tókst með öfl­ ugu fólki,“ segir hún. „En starfsaðstæður eru erfiðar. Gríðar­ leg pressa og mikil keyrsla. En það var eins og með COVID­ið. Það varð að hugsa alla hluti upp á nýtt.“ Sigríður segir flóttafólki oft ruglað saman við nýbúa. Þetta séu tveir ólíkir hópar. Flóttafólk fái nauðsynlega heilbrigðis­ þjónustu. „En við þurfum að gæta að því að hér er margt fólk með annan bakgrunn, annað tungumál, aðrar venjur, aðrar væntingar til heilbrigðisþjónustu. Það er hópur sem við náum ekki nógu vel til,“ segir Sigríður Dóra. Huga þarf betur að nýbúum á Íslandi læknir, jafnvel þegar ég kem heim fersk úr námi rétt þrítug, að maður vildi hafa áhrif á umhverfið,“ segir hún og að hún hafi haft mikla trú á að geta komið góðu til leiðar. „En grunnurinn er alltaf að þjónusta fólkið. Það rekur mig áfram.“ Hún nefn­ ir hversu heppin hún var í sérnámi að handleiðari hennar hafi verið formaður sænska heimilislæknafélagsins. „Ég hef haft góðar fyrirmyndir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.