Læknablaðið - 01.11.2023, Side 40
524 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
Lífið er hverfult, það sjáum við stund
um í starfi okkar lækna. Í sumar
fundum við skyndilega sterkt fyrir
því hvað líf okkar og starf er ófyrir
sjáanlegt þegar kær samstarfsfélagi
okkar, Helgi Kjartan Sigurðsson, var
tekinn frá okkur á mjög sviplegan
hátt. Helgi Kjartan var einn af okk
ar reyndustu skurðlæknum og við
sem eftir sitjum erum fyrst og fremst
þakklát fyrir að hafa fengið að kynn
ast honum og fyrir allt sem við höfum
lært af honum, bæði í lífi og starfi.
Helgi Kjartan lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla Íslands árið
1994. Eftir kandídatsárið hóf hann
nám í skurðlækningum á Borgarspít
ala 1996 til 1997. Þaðan lá leið hans í framhaldsnám til
Stavangurs í Noregi þar sem hann varð sérfræðingur
í almennum skurðlækningum árið 2001 en sama ár
fékk hann sérfræðiviðurkenningu á Íslandi. Hann lauk
frekara námi í skurðlækningum meltingarfæra í Noregi
2003 með áherslu á ristil og endaþarmsskurðlækningar.
Hann varði doktorsritgerð sína, Advanced Rectal Cancer
– Aspects on Palliative Surgery from a National Perspective,
árið 2008 við Háskólann í Stavangri. Helgi Kjartan byrj
aði í hlutastarfi við skurðdeild Landspítala árið 2006 og
hóf þar fullt starf ári síðar. Hann varð klínískur lektor
við Háskóla Íslands árið 2010.
Helgi Kjartan var formaður Skurðlæknafélags Íslands
(SKÍ) á árunum 20122016 og gjaldkeri SKÍ árin 2016
2018. Hann var formaður samninganefndar SKÍ árin
20112016. Á þessum vettvangi vann hann mjög ötult
og óeigingjarnt starf. Hann var vel að sér í vinnulög
gjöf, almennum réttindum og skipulagi læknastarfsins
og hafði ríka réttlætiskennd sem átti stóran þátt í að ná
fram góðum samningum fyrir hönd skurðlækna. Helga
Kjartani var umhugað um eftirlaunaárin enda meðvit
aður um skemmri starfsævi lækna en almennt þekkist,
ekki síst skurðlækna, og barðist fyrir því að dregið gæti
úr vinnuálagi lækna með hækkandi aldri þeirra.
Helgi Kjartan var einn af lykil
mönnum og frumkvöðlum sér
greinarinnar í öflugu teymi ristil og
endaþarmsskurðlækninga. Hann
var fyrstur til að hefja holsjárað
gerðir á æxlum í endaþarmi gegnum
endaþarmsop og árið 2016 tók hann
þátt í að innleiða og framkvæma
þjarka aðgerðir á ristil og enda
þarmskrabbameinum.
Helgi Kjartan var hjálpsamur og
átti einstaklega gott með að gefa af
sér til samstarfsfélaganna. Það var
ómetanlegt að geta leitað til hans
þegar vandamál komu upp eða
þegar leysa þurfti úr erfiðum verk
efnum. Við finnum fyrir nærveru
hans og söknum þess að njóta ekki lengur starfskrafta
hans og góðra ráðlegginga. Sjúklingar og samstarfs
fólk sáu hversu meðvitaður hann var um hlutverk sitt
sem læknir. Hann sinnti starfi sínu af mikilli ástríðu
og hafði hag sjúklingsins ávallt í forgrunni. Hann vissi
að skjólstæðingar hans lögðu allt sitt traust á hann og
hans teymi. Þar gerði hann miklar kröfur til sjálfs sín
og allra þeirra sem komu að meðhöndlun þeirra. Hann
var traustur bæði sem læknir og ekki síst sem samstarfs
félagi og vinur.
Helgi Kjartan var hreinskiptinn, einstaklega ljúfur,
skemmtilegur og glaður og hafði hlýtt bros. Hann var
einlægur og átti mjög gott með að samgleðjast öðrum.
Hann naut þess að lifa og njóta þeirra lystisemda sem
lífið bauð upp á. Hann vissi vel hvað skipti máli og var
þakklátur fyrir það sem hann átti. Fyrir utan starf sitt
átti Helgi Kjartan mörg áhugamál sem hann og Birna
Björk, eiginkona hans, nutu saman og má þar nefna
ferðalög, matseld, fjallgöngur, golf og laxveiði.
Minningin um Helga Kjartan mun lifa áfram í hjört
um okkar.
Fyrir hönd kviðarholsskurðlækna á Landspítala,
Jórunn Atladóttir og Páll Helgi Möller
Minningargrein
Helgi Kjartan Sigurðsson
1967-2023