Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 14
498 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
R A N N S Ó K N
munur milli fagstétta í mati á þekkingu á ayahuasca (p=0,684),
DMT N/NDMT (p=0,656) eða ibogín (p=0,764). Athygli vekur
að þekking á ayahuasca virðist lítil þar sem 64,8% geðlækna,
82,5% heimilislækna og 74,3% sálfræðinga töldu sig hafa
litla eða enga þekkingu á því, en ayahuasca hefur verið þó
nokkuð til umræðu í fjölmiðlum í tengslum við svokallaðar
ayahuasca athafnir.
Viðhorf og afstaða til hugvíkkandi sveppa og lögleiðing notkunar
Könnuð var afstaða svarenda til hugvíkkandi sveppa og til
rannsókna á árangri þeirra og má sjá niðurstöður í töflu II.
Minnihluti svarenda í öllum hópum sagðist vera sammála eða
mjög sammála því að vilja nota sveppi með hugvíkkandi efn
um í meðferð og fá þjálfun í notkun þeirra fyrir skjólstæðinga
sína. Þó var munur í afstöðu fagstétta til notkunar í meðferð
(p=0,009) og þjálfunar (p=0,016) samkvæmt Fisher prófi og voru
Mynd 1. Mat geðlækna (n=38), heimilislækna (n=41) og sálfræðinga (n=177) á þekkingu sinni á alls níu mismunandi tegundum hugvíkkandi efna. Súlurnar sýna hlut-
föll (%) svarenda eftir fagstéttum.
Mynd 2. Mat sálfræðinga, geðlækna og heimilislækna á því hvað gæti verið sérstakt áhyggjuefni við notkun psilocýbíns í meðferðartilgangi.
Súlurnar sýna hlutfallstölur (%) eftir svarmöguleikum (alls ekkert áhyggjuefni; til að hafa einhverjar/nokkrar áhyggjur af; til að hafa miklar/mjög
miklar áhyggjur af) fyrir hverja fagstétt.