Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 52
536 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 Jón R. Kristinsson barnalæknir Hvað varð til þess að ég valdi barna­ lækningar sem mína sérgrein? Ungur læknir veit lítið hvað lífið hefur upp á að bjóða, sérlega þar sem margar sérgreinar voru í þróun á mínum unglæknaárum fyrir 50 árum síðan. Ákvörðun um að verða læknir var farin að mótast hjá mér mjög snemma. Ég er uppalinn í sveit svo þegar lækn­ ingar vöktu áhuga minn var það annað­ hvort um manna­ eða dýralækningar að velja. Ég kynntist vel dýralækni sveitar­ innar en hann var þýskur að uppruna og hafði tekið þátt í seinni heimsstyrj­ öldinni. Þetta var maður með víðtæka reynslu, afar duglegur og að mér fannst töframaður við lækningar dýra. Allt grunnnám mitt var heimavið og í Menntaskólanum á Laugarvatni. Ég tók svo ákvörðun um að fara í læknisfræði við Háskóla Íslands. Góður tími þar með frábærum samnemendum og góðum kennurum. Á kandídatsárinu var dvalið á ýmsum deildum, meðal annars var ég sex mánuði á barnadeild Barnaspítala Hringsins. Þar störfuðu mjög traustir og kunnáttusamir læknar. Þeir voru glöggir að greina vanda barnanna og viðhöfðu góða framkomu gagnvart börnunum og foreldrum. Þar má helst telja Kristbjörn Tryggvason yfirlækni og prófessor, Björn Júlíusson og Ólaf Stephensen og ekki síst Guðmund Jónmundsson sem síðar var náinn og góður samstarfsmaður minn til margra ára. Með dvöl minni hjá þessum góðu mönnum var teningunum kastað. Ég og kona mín, Kristrún R. Bene­ diktsdóttir, héldum í sérnám til Svíþjóð­ ar 1975, á Jönköpings Regionssjukhus og dvöldum þar í sex ár, Kristrún í sérfræði­ námi í meinafræði og ég í almennum barnalækningum. Um tíma var ég einnig við störf og nám á háskólasjúkrahús­ inu í Lindköping, þar sem ég tók meðal annars þátt í vísindastörfum. Í mínu klíníska starfi æxlaðist það svo að ég fylgdi eftir börnum með gigt­ arsjúkdóma og einnig börnum með krabbameinsgreiningar. Á þessum árum var því miður lítið um meðferðarúrræði fyrir þessa hópa, fá lyf og lítið af öðrum gagnlegum úrræðum. Heim til Íslands komum við í ágúst 1981 þar sem ég fór að vinna á Barna­ deild Hringsins á Landspítala. Þar vann ég samfellt frá 1981­2014, það er til 71 árs aldurs. Hvernig varð sérgrein lækna fyrir valinu? Hvar lærðu þeir? Hvaða ráð gefa þeir ungum læknum? Barnalækningar gefandi starf Þar sinnti ég öllum börnum með gigtarsjúkdóma og annan stoðkerfis­ vanda. Einnig sinnti ég ásamt kollega Guðmundi Jónmundssyni börnum með krabbamein og blóðsjúkdóma. Við tók­ um þátt í starfsemi samtakanna NOPHO (Nordic Society Of Pediatric Hematology and Oncology). Tímamót voru þegar lög samtakanna voru sett hér í Reykjavík 1984. Í gegnum þessi samtök höfum við krabbameinslæknar barna tekið þátt í birtingu fjölda vísindagreina. Frá árinu 1981 tók ég einnig að mér ásamt Gesti Pálssyni og Pétri Lúðvígs­ syni, barnalæknum, skoðun á börnum á vegum barnaverndarnefnda. Ég var fulltrúi í Barnaverndarráði Íslands á árunum 1987­2002. Með nýjum barna­ verndarlögum varð þá til kærunefnd barnaverndarmála 2002 en í þeirri nefnd sat ég í nokkur ár. Barnahús var sett á laggirnar 1997, á þeim starfsvettvangi var ég fulltrúi Barnaspítalans í nokkur ár. Samhliða þessum störfum hef ég frá árinu 1983 rekið eigin læknastofu þar sem ég hef sinnt almennum barnalækn­ ingum. Starfið hefur mér alla tíð fundist gef­ andi, þó á stundum erfitt, en fyrst og fremst skemmtilegt og áhugavert. Börn­ in hafa oft með yfirvegun og æðruleysi kennt manni margt og gott að finna þegar maður getur hjálpað og stutt fjöl­ skyldur í vanda. Ég hef verið lánsamur að fá að starfa með góðu fólki. Ég er uppalinn í sveit svo þegar lækningar vöktu áhuga minn var það annaðhvort um manna- eða dýralækningar að velja. Ég kynntist vel dýralækni sveitarinnar en hann var þýskur að uppruna og hafði tekið þátt í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta var maður með víðtæka reynslu, afar duglegur og að mér fannst töframaður við lækningar dýra. S É R G R E I N I N M Í N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.