Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 18
502 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
R A N N S Ó K N
voru einnig nefndir. Flestir töldu að slíkri meðferð væri best
fyrir komið á sérstökum meðferðarstofum eða geðdeildum
sjúkrahúsa og að sálræn meðferð eða stuðningur ætti að vera
hluti af meðferðinni. Flestir töldu að þjálfun fagfólks í veitingu
meðferðar ætti að fara fram við háskóladeildir eða háskóla
sjúkrahús. Þjálfun og fyrirkomulag meðferðar með hugvíkk
andi efnum hefur ekki verið rannsökuð erlendis svo höfundar
viti til. Meðferð í rannsóknum á árangri psilocýbíns við með
ferðarþráu þunglyndi hefur farið fram á háskólastofnunum eða
stofnunum sem tengjast rannsakendum, en bæði sálfræðingar,
geðlæknar og aðrir menntaðir meðferðaraðilar stýra með
ferðartímum í þessum rannsóknum og eru yfirleitt tveir aðilar
viðstaddir þegar efnið er tekið inn og meðan áhrifin vara.2,18
Meðferð með öðrum efnum, til dæmis ayahuasca, hefur ver
ið veitt með óformlegri hætti.19 Niðurstöður rannsóknarinnar
geta nýst í faglegum umræðum um fyrirkomulag meðferðar
af þessu tagi, ef til hennar kemur. Að mati svarenda í öllum
faghópum, er skortur á fagaðilum til að veita meðferðina eitt
helsta áhyggjuefnið ef til meðferðar með psilocýbíni kæmi, en
öryggi skjólstæðinga á meðan áhrifin vara og eftir að þau hafa
dvínað var einnig oft nefnt.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þekking fagaðila á
hugvíkkandi efnum kemur úr ólíkum áttum. Til dæmis sögðu
flestir geðlæknar að lestur fræðigreina hefði mótað skoðun
þeirra og viðhorf til hugvíkkandi efna á meðan umræður í fjöl
miðlum og við samstarfsfélaga var oftast nefnt á meðal heimil
islækna og sálfræðinga. Formleg þjálfun og menntun var mun
sjaldnar nefnd í öllum fagstéttum. Það er því þörf á að hugað sé
að þessu viðfangsefni í formlegri menntun og endurmenntun
starfsstétta á heilbrigðissviði, auk þess sem fagleg umræða
á vegum fagfélaga getur verið mikilvæg í þessu sambandi.
Niðurstöðurnar sýna að áhugi á frekari fræðslu er þó nokkur,
meðal annars um mögulegan meðferðarárangur, framkvæmd
meðferðar og hverjum hún henti best, víxlverkun efnanna
við önnur efni svo og sálfræðimeðferð sem veitt er samhliða.
Aukinn áhugi og kerfisbundnar rannsóknir á notkun hugvíkk
andi efna í meðferð geðraskana er nokkuð nýr af nálinni, og
bent hefur verið á þætti sem þurfi að bæta úr í rannsóknum
þessu sviði, meðal annars til að auka áreiðanleika og réttmæti
niðurstaðna.2028 Einnig er margt sem enn á eftir að upplýsa, svo
sem virkni efnanna í fjölbreyttari og stærri hópum sjúklinga,
mismunandi tegundum og alvarleika sjúkdóma, mögulegar
aukaverkanir og áhættuþætti ásamt hugsanlegum langtímaá
vinningi eða skaða af notkun þeirra. Háskólar og fagfélög munu
gegna mikilvægu hlutverki í að koma niðurstöðum rannsókna
á þessu til skila til verðandi heilbrigðisstarfsfólks og þeirra sem
tekið hafa til starfa. Það er mikilvægt að samhliða því sé upplýs
ingum veitt til almennings en kannanir sýna að almenn notkun
efnanna er frábrugðin því sem gerist í rannsóknum, sem getur
haft vanda í för með sér.29
Að lokum er rétt að undirstrika að þótt rúmlega helming
ur skráðra félagsmanna í Geðlæknafélagi Íslands hafi svarað
könnuninni, svöruðu hlutfallslega fáir sálfræðingar og heim
ilislæknar. Skekkju getur því gætt í niðurstöðunum og þarf að
gæta varfærni þegar ályktanir eru dregnar. Gildi niðurstaðn
anna er þó umtalsvert þar sem viðhorf í garð notkunar þessara
efna í meðferðartilgangi hafa aldrei verið rannsökuð áður hér
á landi. Þörf er á viðameiri viðhorfskönnun til að efla faglega
umræðu frekar og fylgjast með þróun þekkingar og viðhorfa á
þessu sviði.
Heimildir
1. Nichols DE, Walter H. The History of Psychedelics in Psychiatry. Pharmacopsychiatry
2020; 54: 15166.
2. CarhartHarris R, Giribaldi B, Watts R, et al. Trial of Psilocybin versus Escitalopram for
Depression. N Engl J Med 2021; 384: 140211.
3. Mitchell JM, Bogenschutz M, Lilienstein A, et al. MDMAassisted therapy for severe
PTSD: a randomized, doubleblind, placebocontrolled phase 3 study. Nat Med 2021; 27:
102533.
4. Jóhannesdóttir Á, Sigurðsson E. Notkun psilocybins við meðferðarþráu þunglyndi.
Læknablaðið 2022; 108: 40310.
5. Begola MJ, Schillerstrom JE. Hallucinogens and Their Therapeutic Use: A Literature
Review. J Psychiatr Pract 2019; 25: 33446.
6. Vollenweider FX, Preller KH. Psychedelic drugs: neurobiology and potential for treat
ment of psychiatric disorders. Nature Rev Neurosci 2020; 21: 61124.
7. Schenberg EE. PsychedelicAssisted Psychotherapy: A Paradigm Shift in Psychiatric
Research and Development. Front Pharmacol 2018; 9: 733.
8. Kristjánsson SJR. Ólögleg vímuefni viðhorf og neysla. Talnabrunnur 2019. 13.
9. Barnett BS, Siu WO, Pope HG Jr. A Survey of American Psychiatrists' Attitudes Toward
Classic Hallucinogens. J Nerv Ment Dis 2018; 206: 47680.
10. Barnett BS, Beaussant Y, King F 4th, et al. Psychedelic Knowledge and Opinions in
Psychiatrists at Two Professional Conferences: An Exploratory Survey. J Psychoactive
Drugs 2022; 54: 26977.
11. Grover C, Monds L, Montebello M. A survey of Australian psychiatrists' and psychiatry
trainees' knowledge of and attitudes towards psychedelics in the treatment of psychiatric
disorders. Australas Psychiatry 2023; 31: 32935.
12. Page LA, Rehman A, Syed H, et al. The Readiness of Psychiatrists to Implement
PsychedelicAssisted Psychotherapy. Front Psychiatry 2021; 12: 743599.
13. Meir P, Taylor L, Soares JC, et al. Psychotherapists' openness to engage their patients in
PsilocybinAssisted Therapy for mental health treatment. J Affect Disord 2023; 323: 748
54.
14. Ko K, Kopra EI, Cleare AJ, et al. Psychedelic therapy for depressive symptoms: A system
atic review and metaanalysis. J Affect Disord 2023; 322: 194204.
15. De Gregorio D, AguilarValles A, Preller KH, et al. Hallucinogens in Mental Health:
Preclinical and Clinical Studies on LSD, Psilocybin, MDMA, and Ketamine. J Neurosci
2021; 41: 891900.
16. Luoma JB, Chwyl C, Bathje GJ, et al. A MetaAnalysis of PlaceboControlled Trials of
PsychedelicAssisted Therapy. J Psychoactive Drugs 2020; 52: 28999.
17. Mithoefer MC, Feduccia AA, Jerome L, et al. MDMAassisted psychotherapy for treat
ment of PTSD: study design and rationale for phase 3 trials based on pooled analysis of
six phase 2 randomized controlled trials. Psychopharmacol (Berl) 2019; 236: 273545.
18. Goodwin GM, Aaronson ST, Alvarez O, et al. SingleDose Psilocybin for a Treatment
Resistant Episode of Major Depression. N Engl J Med 2022; 387: 163748.
19. Uthaug MV, Mason NL, Toennes SW, et al. A placebocontrolled study of the effects of
ayahuasca, set and setting on mental health of participants in ayahuasca group retreats.
Psychopharmacol (Berl) 2021; 238: 1899910.
20. Aday JS, CarhartHarris RL, Woolley JD. Emerging Challenges for Psychedelic Therapy.
JAMA Psychiatr 2023; 80: 5334.
21. Bedi G, et al. MDMAassisted psychotherapy for posttraumatic stress disorder: The
devil is in the detail. Aust N Z J Psychiatry 2023; 57: 47681.
22. Burke MJ, Blumberger DM. Caution at psychiatry's psychedelic frontier. Nat Med 2021;
27: 16878.
23. Hall WD, Humphreys K. Is good science leading the way in the therapeutic use of
psychedelic drugs? Psychol Med 2022; 52: 284951.
24. Halvorsen JO, Naudet F, Cristea IA. Challenges with benchmarking of MDMAassisted
psychotherapy. Nat Med 2021; 27: 168990.
25. Munafo A, Arillotta D, Mannaioni G, et al. Psilocybin for Depression: From Credibility to
Feasibility, What's Missing? Pharmaceuticals (Basel) 2022; 16: 68.
26. Petranker R, Anderson T, Farb N. Psychedelic Research and the Need for Transparency:
Polishing Alice's Looking Glass. Front Psychol 2020; 11: 1681.
27. Petry LG, Sharma M, Wolfgang As, et al. Any Questions? A Sober Look at MDMA. Biol
Psychiatry 2021; 90: e7e8.
28. Yaden DB, Yade ME, Griffiths RR. Psychedelics in PsychiatryKeeping the Renaissance
From Going Off the Rails. JAMA Psychiatry 2021; 78: 46970.
29. Glynos NG, Fields CW, Barron J, et al. Naturalistic Psychedelic Use: A World Apart from
Clinical Care. J Psychoactive Drugs 2023: 55: 37988.