Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Side 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Side 22
Texti og myndir: Jón Hjaltason Danir standa á því fastar en fótunum að þeir eigi elsta kolaknúða hjólaskip veraldar, það er að segja sem enn er í notkun. Við drögum þetta ekki í efa eitt augnablik enda er ég mættur á staðinn. Og sjá, þarna er skipið, S/S Hjejlen, um það bil 28 metrar á lengd og rúm 27 tonn. Sannarlega glæsilegt fley sem ber aldurinn vel en því var hleypt af stokkum sumarið 1861. Skipasmiðir Baumgarten & Burmeisters Maskinbyggeri (seinna Burmeister & Wain) í Kaupmannahöfn sáu um smíðina. AÐ HJARTA JÓTLANDS Skipinu var strax í upphafi ætlað að auðvelda ferðamönnum að komast um Jótland, þangað sem ekki gengu járnbrautir. Um það bil 2000 þorpsbúar höfðu tekið sig saman um smíðina en gekk illa að afla fjár. Þá vildi svo til að maður þekkti mann og sá var enginn annar en Friðrik VII. og konungur kippti í spotta og ríkið lánaði fé svo borga mætti Burmeister. En það var um langan veg að fara til heimahafnar Hjejlen. Mokað var duglega í katlana og undir svörtum kolareyk hvarf skipið smiðum sínum. Fram undan var sigling alla leið inn að hjarta Jótlands eða nánar tiltekið til Silkiborgar sem síðan hefur verið heimahöfn Hjejlen. Og þar er ég staddur þótt ekki hafi ég farið sömu leið og Hjejlen forðum sem sigldi norður fyrir Sjáland, fram hjá Helsingör, þvert yfir Kattegat og yfir til Jótlands. Þar var stefni beint upp lengstu á Danmerkur, Gudanåen, fram hjá Randers og þaðan í suður að Silkiborg. Ég kom keyrandi. ÞRÍGIFTUR KÓNGUR UM BORÐ Og þarna liggur Hjejlen, sem ég held að sé heiðlóa upp á íslensku. Og enn siglir þetta fallega gufuskip fallegu leiðina á milli Silkiborgar og Himmelbjerget sem var að því er mig best rekur grunnskóla- minni til hæsta fjall Danmerkur, skagaði víst tæpa 150 metra upp í loftið. Síðan hef ég haft af því flugufregnir að Danir séu búnir að finna hærra fjall til að hreykja sér af. Í meira en 160 ár hefur Heiðlóan klofið þessa vatnaleið að Himmelbjerget og til baka aftur. Siglingin tekið rúma klukkustund. Vígslusiglingin var 24. júní 1861. Þá voru um borð konungurinn, hinn ótrúlega vinsæli og þrígifti Friðrik VII., og eiginkona hans, Lovísa Rasmussen (eiginkona númer þrjú) sem mátti aldrei kalla sig drottningu enda almúgakona, ballerína og leikkona. En Danir fyrirgáfu konungi sínum allt og þegar fréttist að sjálfur konungurinn myndi leggja upp með Heiðlóunni frá Himmelbjerget til Silkiborgar flykktist fólkið að og hyllti konung sinn. Sama varð uppi á teningnum 150 árum síðar þegar Margrét Þórhildur Elsta skipið, Hjejlen Algeng sjón í Silkiborg. Bátahús, mótorbátar við annað hvert hús og á vatninu ræðarar. 22 | Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.