Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Page 29
Sjómannablaðið Víkingur | 29 Góð smurning! Mikið úrval frá Texaco, Castrol og Cargo Oil olis.is Sigurður, bróðir hans, í Flatey og Ólafur Sigurðsson á Vindborðsseli. Fyrir sjötta bátnum var Rafnkell Eiríksson, bóndi í Holtum. Hraktist hann fjögur dægur, því að þegar hinir náðu landi, komst hann inn undir Hrollaugseyjar, en vegna þess að hann var kominn vestur fyrir hlje það, er vanalega er í norðanátt undan Suðursveitar-fjöllum, kom á móti honum óviðráðanlegur stormur fram af Breiðumörk, og í þeirri hviðu vildi það til, að sjór hljóp á ár hjá einum hásetanna, er Konráð hjet og hrökk hann útbyrðis. En í því hann flaut aftur með, náði Rafnkell í fót honum og varð það honum til bjargar. Um nóttina bar þá fyrir Öræfi, en um morguninn var komið logn og náðu þeir þar upp undir land. En vegna útgrynninga er ilt að taka land í Öræfum, og voru allir skipverjar ókunnugir, nema einn; var hann þá farþegi úr Nesjum og þar talinn góður formaður, Þórarinn Pálsson frá Krossbæ, fæddur og uppalinn í Öræfum. Hann lagði það ráð til, að þeir skyldu reyna að leita lands vestan til við Ingólfshöfða, í svonefndri Kóngsvík, og hepnaðist þeim það vel. Var þá einn piltur dauður af þeim og Konráð kominn að bana, en þá vildi svo vel til, að tveir menn úr Öræfum komu ríðandi á fjöruna og björguðu þeim að Hofsnesi. Þar var þeim hjúkrað vel og hjeldu lífi, en sumir mjög kalnir á höndum og fótum. Benedikt Hallsson, bóndi á Vindborði, er var fyrir sjöunda bátnum, kom eigi í sandinn fyrri en hinir voru löngu rónir. Var hann kominn skamt undan landi, þegar veðrinu laust á. Sneru þeir þá jafnskjótt við og náðu loks landi um kvöldið, eftir mikinn barning vestan undir Skinneyjarhöfða. Þakkaði Benedikt það að miklu dugnaði og karlmensku tveggja farþega sinna: Stefáns Eiríkssonar, er þá var nýlega orðinn hreppstjóri og farinn að búa í Árnanesi, og Benedikts Bergssonar, einnig bónda þar. Þegar þeir voru að brýna bát sínum, sáu þeir áttunda bátinn koma inn undir höfðann, og þóttust kenna formann hans, Gísla Jónsson, bónda á Brunnhóli, undir andþófsárinni, en undir stýrinu Jón Jónsson, bónda á Flögu, og töluðu þeir um að reyna að taka á móti þeim, en í sama bili kom hviða svo hörð, að bátinn ætlaði að slíta úr höndum þeirra. En er stund leið og hríðinni slotaði og rokið minkaði, sáu þeir bátinn eigi og aldrei síðan. Er það því allra ætlan, að hann hafi þar sokkið, því að til hans hefir aldrei spurst. Af honum druknuðu 7 menn: Þeir tveir, sem þegar eru nefndir, þriðji Guðmundur Hannesson, bóndi á Brunnhól, fjórði Magnús Sigurðsson, bóndi í Slindurholti, fimti Jón Bjarnason, bóndi á Hömrum, sjötti Eyjólfur Sigurðsson, bóndi í Slindurholti, og sjöundi Páll Ófeigsson, vinnumaður á Borg. Alls dóu í hrakningum þessum 14 manns, en fjölda margir voru kalnir á höndum og fótum að mörgu leyti illa til reika. (Heim.: Síra Pétur Guðmundsson: Annáll nítjándu alda 2. b. bls. 189-192.)

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.