Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Page 34
34 | Sjómannablaðið Víkingur Þingeyrakirkja Við þjóðveginn Texti og myndir: Jón Hjaltason Við erum á ferð um hringveginn. Á leiðinni suður og komin í Húnavatnssýslu þá eystri – ef má þá tala lengur um sýslur. Við erum neðst í hlíðinni og gjóum augum niður yfir Húnavatn að Þingeyrum. Í fjarska grillum við í gráleita álfabyggð. Hvaða grámi skyldi þetta vera þarna í landslaginu? Þetta virðist vera einhverskonar bygging. Forvitni okkar er vakin. Fram undan er beygja og brú yfir Hnausakvísl. Við brunum áfram, beygjan er að baki, líka brúin. Og þarna birtist það sem við erum að skima eftir, upplýsingaskilti og vegur sem okkur virðist stefna í átt að álfabyggðinni dularfullu. Skammt þar hjá er fallegur trjáreitur. Við staðnæmumst og lesum um Þingeyrar. Þar þinguðu karlar til forna, Jón Ögmundsson biskup hinn helgi tók þar grunn fyrir kirkju og þar reis árið 1133 hið kunna Þingeyraklaustur. Á Þingeyrum, þessu forna höfuðbóli, bjó líka Þorleifur Kortsson sýslumaður. Hefur enginn Íslendingur staðið fyrir fleiri aftökum en hann. Það var á 17. öld en þá létu galdramenn mikið að sér kveða og var Þorleifur ötull við að þefa þá uppi og færa á bálið, meira þó fyrir vestan en í Húnavatnssýslum. Við tökum stefnuna út á eyrina og það líður ekki á löngu uns álfahóllinn blasir við. En þetta er enginn hóll heldur glæsilega hlaðin steinkirkja. Sjálf Þingeyrakirkja. Undur í Húnavatnssýslu. Sjáið og sannfærist. Algeng sjón í Silkiborg. Bátahús, mótorbátar við annað hvert hús og á vatninu ræðarar. Árið 1860 fluttist alþingismaðurinn og búhöldurinn Ásgeir Einarsson að Þingeyrum. Ásgeiri þótti hneisa að guðshúsinu sem fyrir var á jörðinni og frekar en að búa við torfkirkju að niðurlotum komna réðist hann í að reisa nýja kirkju. Sú var byggð úr steini og stendur enn sem stórkostlegt dæmi um stórhug og áræðni íslensks bónda í Húnaþingi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.