Veiðimaðurinn - 2024, Qupperneq 97
skrifstofa SVFR hefur verið um langt skeið.
Vegna breytinga á starfseminni í Dalnum
sagði Orkuveitan upp leigusamningi við
SVFR, en félagið hafði undir það síðasta
verið með aðstöðu í risi gamla stöðvar-
stjórahússins. Sú aðstaða var óhentug
fyrir margra hluta sakir, bæði fyrir starfs-
menn og félagsmenn, og gat því aldrei
orðið varanleg.
Stjórn ákvað því að festa kaup á skrif-
stofuhúsnæði að Suðurlandsbraut 54 í
Reykjavík undir starfsemina. SVFR er
því orðið eigandi fasteignar í fyrsta sinn
síðan félagið seldi húsnæði sitt á Háa-
leitisbraut árið 2012, þegar nauðsynleg
endurskipulagning á rekstrinum stóð yfir.
Nýja skrifstofan er þegar komin í notkun
og lofar sannarlega góðu.
Félagslíf
Að venju var félagsstarf SVFR öflugt á
liðnu starfsári. Árnefndir stóðu í ströngu
við viðhald og lagfæringar á ársvæðum, en
árnefndarstarfið er eitt af aðalsmerkjum
SVFR. Viðburðanefndin hélt sínu striki,
þar sem silungsveiðikvöld í febrúar og lax-
veiðikvöld í mars heppnuðust sérstaklega
vel. Um 130 manns mættu á hvort kvöldið,
eða álíka margir og mættu á uppskeru-
hátíð SVFR í október.
Viðburðir á vegum fræðslunefndar voru
fjölmargir, þar sem barna- og ungmenna-
dagar stóðu hæst. Alls tóku 64 börn þátt í
þeim sumarið 2023 og upplifðu ævintýri á
bökkum Elliðaánna. Veiði var misjöfn, en
gleðin einskær hjá yngstu félagsmönnum
SVFR.
Tvö laxveiðinámskeið voru haldin í
aðdraganda veiðisumarsins, annars vegar
Max Lax og hins vegar Lærðu að veiða
stórlax, þar sem nokkrir af þekktustu
veiðimönnum landsins deildu þekkingu
sinni og reynslu. Þá var haldið púpuveið-
inámskeið og kastnámskeið í samstarfi við
Kastklúbb Reykjavíkur.
Kvennanefnd SVFR fagnaði 10 ára afmæli
á síðasta starfsári. Nefndin, sem er ein
sú öflugasta innan félagsins, efnir reglu-
lega til viðburða fyrir veiðikonur, heldur
fræðslukvöld og skipuleggur veiðiferðir
svo dæmi séu nefnd. Nefndin heldur
meðal annars utan um verkefnið Kastað
til bata – árlegt samstarfsverkefni SVFR,
Krabbameinsfélags Íslands og Brjósta-
heilla sem er liður í endurhæfingu kvenna
sem barist hafa við krabbamein. Þeim er
boðið að æfa flugukast í fallegu umhverfi,
njóta samvista við veiðifélaga og upplifa
töfra íslenskrar náttúru. Sumarið 2023
mættu 14 konur til þátttöku og nutu
Langár á Mýrum.
Meðal nýjunga þetta árið var Veiðisýning
Ásgeirs Heiðars í Elliðaánum, þar sem
hann kenndi veiðimönnum að veiða valda
veiðistaði. Fjölmenni mætti á bakkann til
að fylgjast með meistaranum og enn fleiri
horfðu á upptöku frá deginum á netinu.
Framtakið mæltist afar vel fyrir og verður
væntanlega endurtekið.
Að venju var Veiðimaðurinn gefinn út
og vakti talsverða athygli út fyrir raðir
félagsmanna. Umfjöllun um baráttuna
gegn sjókvíaeldi var meginþemað í nýj-
asta tölublaðinu, en árið allt einkenndist
mjög af þeirri baráttu. SVFR styður hana
heils hugar og tekur virkan þátt í starfinu,
Veiðimaðurinn 97