Mímir - 01.05.1972, Page 9

Mímir - 01.05.1972, Page 9
Baitans nokkurs í þeim tilgangi að finna eyði- eyju, en heldur er sú frásögn óljósari. Auk þess geta tvær norskar heimildir um papa. Er þar fyrst að nefna Noregssögu munksins Theodórícusar, sem rimð er á latínu seint á 12. öid Er frásögnin mjög lík frá- sögn Ara. Þá er minnzt á papa í Historia Norvegiæ, latnesku riti frá 12. eða 13. öld. Brýmr sú frásögn algerlega í bága við aðrar heimildir, hvað varðar trú og uppmna papa. Er mikill þjóðsagnablær á frásögn þessari og heimildargildið líklega lítið. Vitað er, að írskir munkar ferðuðust mikið á þeim tíma, er líklegt er, að þeir hafi komið hingað. Fóru þeir bæði í trúboðserindum og til að finna eyðilega staði, þar sem þeir gæm alveg gefið sig trúnni á vald. Sótmst þeir mjög eftir afskekkmm og eyðilegum eyjum, og því skyldu þeir þá ekki hafa komið til Islands? I tímaritinu Sögu 1970 er grein eftir Trausta Einarsson, þar sem hann veltir fyrir sér fundi íslands og aðferðum manna fyrr á tímum við að finna land. Bendir hann m. a. á farfugla og skýjamyndanir yfir fjöllum sem fyrirboða lands. Einnig bendir hann á þá staðreynd, að mjög margir landnámsmanna höfðu með sér írska þræla. Mætti hugsa sér, að suma þeirra hafi landnámsmenn einfaldlega tekið með sér sem leiðsögumenn, þar sem Irar voru á þessum tíma miklir sjóferðamenn, og þekktu vel hafið norður af Irlandi. Hefðu þeir getað aflað sér fróðleiks um landið frá munkum þeim, sem þangað höfðu farið. Það er einnig athyglivert, að þeir Garðar Svavarsson, Naddoddur og Hrafna-Flóki, sem fyrstir norrænna manna eru taldir hafa komið hingað til lands, voru allir á einhvern hátt tengdir eyjunum vestur og norður af Skotlandi. Garðar átti suðureyska konu, eins og segir í Hauksbók Landnámu: „hann fór til Suðreyja at heimta fpðurarf konu sinnar."!5 Naddoddur átti ættingja vestanhafs, og Flóki hafði á skipi sínu suðureyskan mann, sem hét Faxi. Allt bendir til þess, að landnámsmenn hafi haft vitneskju sína um Island frá þessum eyjum, og því þá ekki frá einsetumönnum, sem þang- að höfðu farið? II. írsk frumkristni og munkarnir 1. Arið 55 f. Kr. fór Cæsar til Bretlands og lagði suðurhluta landsins undir sig. Þar bjuggu þá keltneskir þjóðflokkar, sem við köllum Breta, og er mál þeirra enn talað í Wales. A Irlandi bjuggu einnig Keltar, og voru þeir fjórði þjóðflokkurinn, sem gerði þar innrás og eitthvað er vitað um. Hin ritaða saga Irlands hefst árið 431 með Ulaztír-annálunum, og er þá einnig notkun latneska stafrófsins tekin upp. Ymislegt er vitað um það, sem gerðist fyrir þennan tíma, þó annála vanti. Helztu heimildir eru forn málstig, sem geta varpað Ijósi á forna menningu og þjóðflutninga, fornleifafræðin, og loks fjöldinn allur af þjóðsögum og þjóðkvæð- um. Einhvern tíma eftir 431 komust lærðir menn á Irlandi að því að ekkert var skrifað um Irland í sögunni, og ákváðu að bæta úr því. Arang- urinn varð „Lebor Gabála" (Landvinningabók- in), annálar frá tímabilinu fyrir kristnitöku og fjöldinn allur af helgisögum og ættartölum. Próf. T. F. O’Rahilly hefur rannsakað þetta tímabil í sögu Irlands og komizt að eftirfarandi niðurstöðu: Vitað er um fjórar innrásir í Irland. Fyrstir komu Priteni, líklega um 500 f. Kr., á írsku nefndir Cmthin og síðar þekktir sem Péttar á Skotlandi. Næstir komu Fir Bolg eða Builg og svo Laginianar, líklega á 3. öld f. Kr. Tveir fyrr- nefndu þjóðflokkarnir komu frá Bretlandi, hinn þriðji beint frá Gallíu. Líklega töluðu þeir allir brezkar mállýskur. Fjórðu innrásina gerðu Geðlar líklega á 1. öld f. Kr. Töluðu þeir mál, sem er forstig gelískunnar í dag, og komu beint frá meginlandinu.16 Péttar bjuggu á norðanverðu Skotlandi, á Suðureyjum, og á tímabilinu um 300—800 heyrðu íbúar Orkneyja og Hjaltlands péttneska 9

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.