Mímir - 01.05.1972, Qupperneq 12

Mímir - 01.05.1972, Qupperneq 12
siðbót. Þessir menn nefndu sig „céli dé'' (kúldea) eða „förunauta Guðs". Af þeim er dregið heiti írsku og skozku kirkjunnar, er hún er nefnd kúldeiska kirkjan. Var nú lögð meiri áherzla á meinlætalifnað en lærdóm í klausturlífinu. Ein- semmannalifnaður hafði aldrei lognast út af á Irlandi, en jókst nú mjög. Þetta voru ekki lengur aðeins einstaklingar, heldur fóru þeir oft saman í hópum. Kúldearnir héldu sig mikið kringum Dyflini, og var eitt klaustra þeirra þar í Tallaght. Þeir voru mjög siðavandir, sögðu m. a. að konum væri eigi treystandi. Virðast þeir hafa verið að reyna að endurvekja aga þann, er var í frumkirkjunni írsku. Áður höfðu einsemmenn farið pílagrímsferðir víða um lönd, en nú bönnuðu ábótar munkum sínum slíkar ferðir út úr landinu. Sögðu þeir sem svo, að Guð væri alls staðar; ekki þyrfti að fara yfir hafið til að finna hann. Kemur þetta oft fram í ævisögum hinna ýmsu dýrlinga. Hreyfing þessi var sérstaklega voldug í suðurhluta landsins. Klaustrin voru menningarmiðstöðvar lands- ins. Þau vom reyndar misstór; þau stærsm töldu nokkur þúsund munka og nemendur. Umhverfis þau tók að blómgast margs konar starfsemi, eftir því sem þörf krafði, svo sem húsagerð, bókagerð, bátagerð, fæðuöflun o. fl. Voru klaustrin sjálfum sér nóg í þessum efnum og uppfylltu með tímanum þörf héraðanna í kring. Klaustri var oft valinn staður á eyðilegum, af- skekktum stað, sem erfitt var að nálgast. Þrátt fyrir misjafna stærð var skipulag yfirleitt hið sama. Á dögum Adomans ábóta vom enn á lífi nokkrir þeirra munka, sem komu í klaustr- ið á Eynni helgu á dögum stofnandans sjálfs, og gefur Adomnan í ævisögu heilags Kolum- killa nokkuð góða mynd af klaustrinu í upp- hafi. Hjarta klausmrsins var kirkjan. Upphaflega munu kirkjur á Irlandi hafa verið trékirkjur. Byggingarstíll þeirra var mjög sérstæður og í engum tengslum við hinn vesmrevrópska á sama tíma. I frásögnum er alltaf talað um tvær gerðir. Ekkert er nú eftir af kirkjum þessum, og hefur fornleifafræðin lítið Ieitt í ljós. Fýrsm steinkirkjurnar virðast þó hafa tekið þær sér til fyrirmyndar að einhverju leyti, en þær eru líklega ekki eldri en frá 9. öld. Ef þær voru til fyrir þann tíma, þótti ástæða til að gefa þeim sér- stakt heiti, og nefndust þær „damliag". Var það aðallega á Vesmr-Irlandi, þar sem grjót var eina byggingarefnið. Kirkjur vora litlar og ferhyrnd- ar að lögun. Er klaustrin stækkuðu, virðast munkarnir ekki hafa stækkað kirkjur sínar, heldur byggt nýjar. Stóðu þær oft í útjaðri klaustursins, stundum afmarkaðar hlöðnum steinveggjum. Oskipulega umhverfis höfuðkirkj- una stóðu kofar munkanna, og bjó hver í sín- um kofa. Kofi ábótans stóð eitthvað afsíðis. Sums staðar hafa þetta upphaflega verið tré- kofar, og hefur það m. a. komið í ljós við upp- gröft á Church Island undan vesmrströndinni. En fljótt leystu steinbyggingar trékofana af hólmi og hafa þeir líklega verið af þeirri gerð allt frá upphafi á vesturströndinni. Með sínu einfalda byggingarlagi hafa þeir haldið velli allt til þessa dags. Þeir eru oftast hringlaga og þakið kúpt sem býkúpa. Umhverfis munkabyggð var oftast hlaðinn steinveggur, meira eða minna hringlaga. Nefndist hann „vallum monasterii" og er oft nefndur í sambandi við keltnesk klausmr. Hlutverk hans gæti verið tvíþætt: Annars vegar til varnar klaustrinu, hins vegar táknræns eðlis, og táknaði hann þá útilokun umheimsins frá klaustrinu. Líklega er hið síðar- nefnda nær lagi, þar sem veggir þessir era ekki líklegir til að hafa komið klaustrinu sjálfu að miklu gagni, ef á það var ráðizt. A. m. k. kom- ust víkingar allra sinna ferða, er þeir hófu að ráðast á og ræna írsk klaustur árið 795. Auk íbúðarkofa munkanna vora þarna kof- ar til sameiginlegra nota, svo sem borðsalur, eld- hús, bókasafn og skriftarherbergi. Einnig höfðu þeir smiðju og handverksstofu. Utan virkisgarðs- ins var ræktað iand og hagar, og var það eign klausmrsins. Þar voru einnig bóndabæir, korn- milla og kalkofn.21 Keltneska trúboðið náði á áranum milli 500 og 600 yfir allt Skotland og mikið af Norður- Englandi, en á Englandi varð keltneska kirkjan 12

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.