Mímir - 01.05.1972, Page 18

Mímir - 01.05.1972, Page 18
Curragh er trégrind með sterklegum tágum í botninn, langsum og þversum, sem húðir voru strengdar yfir, líklega af nautum. Voru þær hafðar ein-, tvö- eða þrefaldar, eftir því hversu langt skyldi siglt. Ljóst er af frásögnum, að curraghar hafa haft einhvers konar stýrisútbún- að, og einhversstaðar er talað um járnakkeri. Einnig er rætt um „nautae", er munu hafa verið vanir sjómenn, sem munkar fengu sér til fylgd- ar yfir hafið. Aðallega var notazt við segl. Ekki er ljóst af frásögn Dicuilusar um ferðirnar til Færeyja og Islands, hvort notaðir voru curragh- ar, en eftir komu víkinga mun tímabili þeirra sem langferðaskipa lokið. Eru þeir síðan aðal- lega notaðir sem árabátar, þó að þeir hafi reyndar lítið segl til hjálpar.29 Bámr af venju- legri stærð ber nú auðveldlega 4 menn, tekur um 2 tonn, og er oft um 16 fet á lengd. Um miðja síðustu öld var hætt að nota í þá húðir, og em þeir nú gerðir úr tjörubornum striga. Notkun þeirra fer nú ört minnkandi. Vask, þars fell af fjalli flóðkorn j?tuns móður hám bergrisa ór himni heiðins ána leiðar. Gerir fár j<?tunn fleiri fold í vinga moldu h9mlu heiðar þumlu hamváta mér báta.30 Þessa vísu er að finna í Hauksbók Land- námu, en hér er rætt um hamváta báta eða húðblauta báta, þ. e. skinnbáta. Þess em dæmi, að skinnbátar hafi verið notaðir hér á landi, enda ekki ólíklegt, að menn hafi þekkt þá hér, þar sem notkun þeirra var svo almenn bæði í austri og vestri, þ. e. á Grænlandi. I Fitja- annál stendur við árið 1666 eftirfarandi: „Þá dmkknaði maður í Hvítá í Borgarfirði hjá Sámsstöðum af völmm skinnbát og annar í Túná austur."3l Þessi frásögn er tekin upp í riti Hins íslenzka lærdómslistafélags, þar sem vitnað er í annálinn. 18 Þar segir: „I fyrndinni hafa hér verit brúkaðir skinnbátar, því 1666 drukknaði maðr í Hvítá hjá Sámstöðum af vpllmm skinnbáti."32 Lítið er hægt að gera með þessar fáu heim- ildir um skinnbáta hér á landi, auk þess sem ekkert það hefur fundizt í jörðu, sem bent gæti til notkunar þeirra. III. Ornefni Auk ritaðra heimilda um papa ber að nefna þær heimildir, sem örnefni eru. Ornefni kennd við papa má rekja allt frá eynni Mön til Islands. Um örnefni þessi hafa ritað þeir Einar Ol. Sveinsson í 1. kafla bókarinnar „Landnám í Skaftafellsþingi" og Hermann Pálsson í grein um papa í Sögu 1965, og verður stuðzt við báðar þessar greinar hér á eftir. Irska myndin af orðinu papi mun eitthvað á reiki, en það voru Norðmenn, sem gáfu írsku munkunum þetta heiti. Merking orðsins hefur þegar verið rædd í formála. Heiti þetta á írsk- um munkum og einsernmönnum er vestnorrænt. A eynni Mön er örnefnið Glen Faba, og mun síðara orðið vera Papá. A Stóra-Bretlandi er til örnefnið Papcastle, og mun fyrri liðurinn vera papi. A Suðureyjum munu nú þekkt eftirfarandi papaörnefni: Fimm Papeyjar, þrjú Papýli, einn Papadalur og eitt Papanes. Oll eru þau á norðurhluta eyjanna, og er helzta skýringin sú, að suðurhlutinn hafi þegar verið orðinn kristinn, er víkingaöldin hófst, svo að ekki var þörf á trúboðum nema í norðurhlutanum. Helzt má ætla, að papar hafi komið til Islands frá Suðureyjum, auk þess sem þeir komu frá Irlandi. Eru því suðureyzk ör- nefni mikilvæg örnefnarannsóknum hér. í Orkneyjum eru tvær Papeyjar og tvö Papýli. A Hjaltlandi eru þrjár Papeyjar, þrjú Papýli og auk þess Papilwater, Papilsjo, Papa- skerri, Papegjo. I Færeyjum er Papurshálsur, en fyrri liður þess mun talinn afbökun af Papýli.

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.