Mímir - 01.05.1972, Qupperneq 25
ÞÓRÐUR HELGASON:
GAMALT OG NÝTT EFTIR ÞORGILS GJALLANDA
BÓKMENNTARITGERÐ TIL 3. STIGS í ÍSLENZKU VORIÐ 1971.
Tilvítnanir allar, úr íslenzkum og erlendum bókum, eru teknar orðrétt upp. Ekki reyndist
þó unnt að sýna gegnumstungið ö, og er því íslenzka ö-ið notað þess í stað.
Efnisskrá.
1. Formáli.
2. Sviðið og tíminn.
3. Stíleinkenni og málfar.
4. Bækur og lestur þeirra.
5. Kennarinn og lærisveinninn — Gestur Pálsson og Þorgils gjallandi.
6. Ádeilan.
7. Persónur.
8. Lokaorð.
9. Heimildir.
Formáli.
Margir hafa velt þeirri spurningu fyrir sér,
hvaða tilgangi bókmenntarýni þjónaði, hvort
hún þjónaði yfirleitt nokkrum tilgangi. Ovið-
komandi maður, oft fjarlægur höfundinum og
verkinu í tíma og rúmi, skyggnist á bak við verk-
ið, hugmyndaheim þess og einkenni, og breytir
tilfinningalegri reynslu höfundar í óskáldlegt
kerfi. Aðrir, jarðbundnari, hafa íhugað og sett
fram kenningar um, hversu slík rannsókn slruli
fram fara, og hafa svörin orðið mörg og ólík.
Litið hefur verið í átt til ýmissa hjálpargreina,
svo sem sagnfræði, sálarfræði og þjóðfélags-
fræði. Allt þetta hefur orðið bókmenntarann-
sóknum hjálp, en vart endanlegt svar. Allar
tilraunir mannsins til að benda á almenn lög-
mál til bókmenntarýni hafa mistekizt. I hverju
verki eru samofnir þættir, almennir og persónu-
bundnir.
I eftirfarandi ritgerð mun ég taka til með-
ferðar eitt verk ákveðins höfundar, reyna að
lýsa hugmyndaheimi þess og setja það í sam-
band við tímann og umhverfið, sem ól það af
sér.
Verkið er Gamalt og nýtt, saga eftir Jón
Stefánsson, sem þekktari er undir dulnefni sínu,
Þorgils gjallandi.
Jón Stefánsson var fæddur 2. júlí árið 1851
að Skútustöðum í Mývatnssveit. Foreldrar hans
voru hjónin Guðrún Olafsdóttir og Stefán
Helgason, en þau bjuggu á hálfum Skúmstöð-
um. Árið 1855 fluttu þau að Geirastöðum við
Mývatn, og þar dó Guðrún, þegar Jón var
aðeins níu ára. Faðir hans fluttist að Gautlönd-
um, en síðan að Arnarvatni, og þar kvæntist
hann aftur, Sigurbjörgu Jónsdóttur, en vorið
1868 dmkknaði hann við annan mann í Mý-
vatni. Jón dvaldist næsta ár hjá stjúpu sinni
við bústörf, en varð síðan vinnumaður á ýms-
um bæjum allt til 1877, utan stuttan tíma, er
hann var við nám að Skinnastöðum í Oxar-
firði hjá sr. Benedikt Kristjánssyni. Jón kvænt-
ist árið 1877 Jakobínu Pétursdótmr frá Reykja-
hlíð. Bjuggu þau á ýmsum stöðum þar til 1889,
er þau flutmst að Litluströnd, en þar bjó Jón
til dauðadags 1915. Eignuðust þau hjón tvær
dæmr barna.
25