Mímir - 01.05.1972, Page 30

Mímir - 01.05.1972, Page 30
samanburð Gests Pálssonar og Þorgils, sést, að slúðrið hefur mjög höfðað til Þorgils með sálgæðingu hugtaka, annars vegar fyrir ótví- ræð áhrif frá Gesti, en hins vegar fyrir hugsan- leg áhrif frá Björnson. Jafnvel þótt notkun tákna og táknmáls sé ekki samkvæmt eðli raunsæisstefnunnar, vil ég nefna nokkur hugsanleg dæmi. Eins og Gamalt og nýtt gerast margar sögur Þorgils í dölum, og Arnór Sigurjónsson segir: „Vitandi og vilj- andi velur hann sögum sínum annað umhverfi en heimasveitina, hann kýs heldur að lýsa gróð- urmagni og svipmýkt dalannaniðurfráhenni. d'1 Ég tel, að dalurinn í þessari sögu sé tákn mann- lífsins, sem lifað er í honum — tákn þröng- sýninnar, enda talar Þorgils um dalamolluna í því sambandi. Þeir bæir, sem mest koma við sögu í verkinu, eru Kirkjuból, Hamar, Brú og Gil. Hinir lítilsigldu menn eiga heima á Kirkju- bóli og Gili, en þeir viðsýnu að Brú og Hamri. Virðist mér bæjarnöfnin vera táknnöfn og um leið andstæður; ból og gil annars vegar, en hamar og brú hins vegar. Undir þetta rennir stoðum, að sama ár og Þorgils skrifaði Gamalt og nýtt, samdi hann dýrasöguna Fölskva. Þar eru bæjarnöfnin Hóll og Gröf. Lítilmennið býr að Gröf, en hetjan að Hóli. Einnig finnst mér líklegt, að Þórarinn og Guðni séu tákn- nöfn; Þór gegn Guði. A öðrum stað í ritgerð- inni er vikið að táknrænni útlitslýsingu þeirra Þórarins og Guðna, þar sem hár og skegg þeirra lýsa innra manni. Mjög athyglisverð er hin langa náttúrulýsing Þorgils, þar sem hann lýsir frelsi blóma og dýra náttúrunnar sem andstæðu við ófrelsi mann- anna: „Vorsólin björt og brennandi vakti sumar- gróðann af svefni og dái. Blómin lyftu dögg- votum kollinum á móti morgungeislunum, rugg- uðu sér í andvaranum ánægð og sæl... það var náttúran á vordegi, þrunginn af frjófsemi og lífi. Fuglarnir sungu og kvökuðu allan lið- langan daginn og mest af nóttinni líka, elskuðu einungis eftir eðli sínu, án þess að hugsa um annað en sælu og munað líðandi tíma. Náttúr- an var lögmál þeirra, og enginn fjömr né farg hvíldi yfir þeim, sem fastur arfur, né viðtekin prýði framan úr fornaldar tímum; engar kredd- ur með kúgandi afli myrkvuðu heiminn fyrir þeim; þeir voru sælir og heilbrigðir, ástfangn- ir og ánægðir, frjófsamir og saklausir... Lamb- ið kraup á knjánum, saug móðurina og dillaði rófunni, ærin stóð jórtrandi, þefaði öðru hvoru, nasaði svo út í loftið eftir gróðuranganinni; var hjartanlega ánægð yfir lífinu og lambinu sínu, hafði enga óuppfyllta þrá, sem hjó skarð í lífsnautnina.”2 Dæmi um slíka lýsingu er einnig hjá Björn- son í Pá Guds Veje: „Litt længre borte, i ly av guttens skammel, som hadde stát glæmt der nogen dager, ringte en yndefull diclytra pá lang blomsterstængel, full av röde klokker, til bryllup, tii bryllup — uten det minste skjön pá brevet til Efeserne 5.24. Derfor oversá præsten den."8 Þorgils skrifar þróttmikið alþýðumál og hef- ur greinilega orðið fyrir miklum áhrifum af lestri fornsagna, eins og lýsingar þeirra Þór- arins og Guðna bera vott um. I annan stað hikar Þorgils ekki við að nota erlend orð, sem hann hefur lært, t. d. morfin, tilbagefald, optim- isti, pessimisti o. fl. Á einum stað í verkinu segir: „Sambúð margra hjóna var þjóðlygi.. ."4 Orðið þjóðlygi er sennilega þýðing á samfunds- lögn, enda er bókarinnar De moderne Sam- fundslögne eftir Nordau getið í sögunni. I rit- gerð einni í Heimskringlu notar Gesmr Páls- son orðið mannfélagslygi: „En þetta er í raun og veru bara mannfélagslygi.. ."5 og virðist eiga við það sama. Ekki er ólíklegt að þeir séu að þýða sama orðið. Sagan Gamalt og nýtt er mjög ólík hinum sögunum í Ofan úr sveimm, sem allar eru stuttar. I þeim er um áhrif frá Gesti Pálssyni að ræða hvað viðkemur efnistökum, hann reynir að 1 Arnór Sigurjónsson, Ritsafn IV, bls. 4. 2 Gamalt og nýtt, bls. 88—89. 3 Björnstjerne Björnson, Pá Guds veje III b. bls. 316. 4 Gamalt og nýtt, bls. 115. 5 Gestur Pálsson, Ritsafn I, bls. 15. 30

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.