Mímir - 01.05.1972, Page 34

Mímir - 01.05.1972, Page 34
skríður inn um hverja einustu rifu, sezt fyrir í hverri sprungu, treður sér á milli þils og veggj- ar, laumast úr einu herbergi í annað, og til- gangurinn er alltaf og alls staðar sá sami, að reyna að smella blettum á, og freista, hvort það sé ekki hægt að búa til dálítinn fúa... hvert einasta atvik fær þýðingu, margfalda þýðingu, sem alltaf vex, eftir sama lögmáli og snjóflóð, því lengra sem dregur frá upprun- anum."1 I Upp við fossa er slúðrinu þannig lýst: „Fyrst snerist sveimurinn milli griðkvenn- anna, svo til vinnumannanna; einhverri þeirra varð á að trúa einum þeirra fyrir þessu leyndar- máli; Svo valt það ofan brekkuna og út og suður allan dalinn, smaug inn á þennan bæinn og litlu seinna á hinn.. ."2 Ekki dylst líkingin með þessum tveimur lýsingum á slúðrinu, en enn líkari er lýsing Þorgils á slúðrinu í Gamalt og nýtt: „Umtalið kolsvart og skitið, af því að velkjast mann frá manni í dalnum, komst til Sigríðar að lokum, læddist og gufaði inn, lítið að ummáli í einu, en safnast þegar saman kemur... Kom líka í Hamar; eins og sagt er frá sendingunum fyrrum, gufaði það inn um hverja smárifu og — draugurinn stóð risavax- inn og ófrýnn, velti til hausnum og skældi kjaftinn, svo að sá í svart hyldýpið.. ."3 Hér leynir sér ekki skyldleikinn við slúður Gests: Báðir sálgæða þeir slúðrið. Slúðrið hjá báðum læðist, það fer inn um rifur og það hleður utan á sig. A öðmm stað í Gamalt og nýtt segir Þorgils: „Fólk fór að stinga saman nefjum um, að hjónasambúðin á Kirkjubóli væri ekki eins góð og vera ætti; fyrst heimilis- fólkið, og svo læddist það í loftinu bæ frá bæ og mann frá manni líkt og kvefsótt eða annar hvimleiður faraldur."4 Einnig hér læðist slúðrið og vex. Einnig: Máske Björn hafi verið fenginn tll (til) að gangast við barninu; það læddist nm (um) dalinn eins og móða.. ,"5 Og enn læðist slúðrið. I Upp við fossa er enn ein lýsingin á slúðrinu: „... fór þó lítill sveim- ur að læðast um bæina.. ."6 Sveinn Skorri bendir einnig á, hversu líking slúðursins hjá Gesti við vætusudda minnir á lýsingu Þorgils á hráslaganum í Upp við fossa. Gestur talar um „klikkurnar",7 og í bréfi til Benedikts Jónssonar skrifar Þorgils: „ „— Og eitt er enn, sem gremur mig, það að Guð- mundur á Sandi skyldi þó verða sannspár með „klikkuna" ..." "s Einnig má benda á, að þeir sjá fornöldina, glæsiöldina, í sama ljósi, sjá, þótt ýmsir dýrkuðu frelsi þess tíma, að víða var pottur brotinn. Frelsið var einungis fárra. Báðir vega þeir Gestur og Þorgils að Matthíasi og Torfhildi Hólm, en hrósa nýju erlendu bók- unum. Ekki er óhugsandi, að Þorgils hafi lært eitt- hvað af upphafi Kærleiksheimilisins: „Það var mesta rausnarkona hún Þuríður á Borg.. ,“9 Á líkan hátt byrjar Þorgils ýmsar smásögur sínar, t. d. Leidd í kirkju: „Það var ágætur búmaður hann Sigmundur á Bakka.. ,“10 Séra Sölvi hefst þannig: „Hann var fæddur rétt fyrir innan búðarborðið, hann séra Sölvi..."11 og Ósjálf- ræði á líkan hátt: „Þau elskuðust heitt og inni- lega Hvammshjónin."12 Sveinn Skorri Höskuldsson hefur bent á, hversu oft kvenpersónur Gests hafa smáar, hvítar hendur. Höndum Sigríðar er svo lýst í Gamalt og nýtt: „ ... litlu hvím hendurnar hennar.. ,"13 Um hendur Þuríðar í Upp við fossa segir: „... þrýsti ofurlítið hvítu, smáu hendinni.. ."14 og um hendur Gróu í sömu sögu: „ .. . dró vettlinginn af hægri hendi, hvítri og varmri.. ,"15 Um lýsingu Gests á karlmönn- t Gestur Pálsson, Ritsafn II, bls. 65. 2 Þorgils gjallandi, Upp við fossa, bls. 78—79. 3 Gamalt og nýtt, bls. 142—143. 4 Gamalt og nýtt, bls. 69—70. 5 Gamalt og nýtt, bls. 108. 6 Þorgils gjallandi, Upp við fossa, bls. 157. 7 Gestur Pálsson, Ritsafn II, bls. 58—59. 8 Arnór Sigurjónsson, Ritsafn IV, bls. 100. » ° Gestur Pálsson, Ritsafn I, bls. 41. 10 Ofan úr sveitum, bls. 3. 11 Ofan úr sveitum, bls. 11. 12 Ofan úr sveitum, bls. 17. 13 Gamalt og nýtt, bls. 100. 14 Upp við fossa, bls. 143. 15 Upp við fossa, bls. 87. 34

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.