Mímir - 01.05.1972, Side 36

Mímir - 01.05.1972, Side 36
ir líkinguna við fossinn og hringiðuna. Þorgils notar einnig „suddann", og minnir það á Gest í lýsingu hans á slúðrinu, eins og Sveinn Skorri hefur bent á. Ádeilan. Heildarniðurstaða. Adeilan í sögunni er á ýmsan hátt fram sett, en einkum þó er Steinar á Brú látinn koma henni á framfæri. Sagan beinir ekki spjómm sínum að einu ádeiluefni, heldur ýmsum. Heild- arniðurstaða sögunnar er samt ein; þjóðfélagið. Dauði Sigríðar í lok sögunnar sýnir, hversu þjóðfélagið, fullt lyga og hræsni, leikur börn- in sín. Sigríður gat ekki lifað í því Slík hin sama er niðurstaða „Pá Guds veje" eftir Björn- son og „Constance Ring" eftir Amalie Skram. Það var ekki kvefsóttin, sem drap Sigríði, eða berklarnir trú Kallem, heldur hin veiklandi áhrif slúðurs, lyga og hræsni. Uppeldið: Sigríður er alin upp í eftirlæti og hlýðni" ... en foreldrarnir hafa víst aldrei nefnt sjálfstæði, svo hún heyrði."1 Hér deilir Þorgils á uppeldi Sigríðar, en einnig deilir hann á óhollan lestur í uppeldinu. I sögunni skynjum við lausnina, sömu lausn, sem Gestur Pálsson talar um; aukin mennmn, lesmr bóka, sem eru sannar. A þetta bendir Strindberg raunar einnig í Giftas. Astin: Sigríður giftist Guðna á fölskum for- sendum. Hún heldur vegna glæsilegs útlits hans og framkomu, að hún elski hann, og hin- ar rómantísku sögur um ástina renna stoðum undir það. Eftir að hjónabandsfjömrinn er kom- inn á samband þeirra og óheilindi sr. Guðna henni ljós, finnur hún, að hún elskar hann ekki og að hann elskar hana heldur ekki. Samt reyna þau að leika elskandi hjón, hræsna ást- ina, en það mistekst fyrir þeim. Ast Sigríðar og Þórarins er hin sanna náttúm- lega ást, gagnstætt lygasambúð þeirra hjóna, hin eðlilega ást eins og fuglanna og allrar náttúmnnar. Steinar á Brú, sem einatt er mál- pípa höfundar, segir um samband þeirra: „... þú tekur með elskunnar rétti frá prestinum.. ."2 36 Réttur ástarinnar er fullkominn, en hjónabandið einungis óeðlilegur hlekkur, kirkjukredda, sem stríðir á móti eðlinu. Hjónabandið: Þorgils er fyrsti íslenzki rit- höfundurinn, sem ræðst á hjónabandið sem stofnun. Honum finnst hjónabandið óeðlileg stofnun og sækir óspart dæmi til þess úr náttúr- unni og dýraríkinu: „—Dýrið í manninum er sterkt, menn hafa aldrei fundið lagið á að temja það.. ,"3 og um hjónabandið: „... þá loksins fengu menn guðlega tígilinn mjúkan og mjóan og teyggóðan eins og silkiræma, þessi Gleipnir átti nú að halda vonargandi hvers manns bundn- um. — Það er nú dagsatt, að þanþolið er fjarska mikið í fjötrinum, dýrið hefur ekki legið aðgerðalaust eða í dái síðan; í rökkrinu og myrkrinu hefir það gengið og fengið sér bráð, svona teyggott er nú guðlega bandið."4 Enn fremur: „■—• dýrið hefur ekki verið ljótt né viðbjóðslegt þá — það hefur bara verið of kátt og brútalt. En í fjötrinum er það orðið lymskt og ljúgandi, stelandi.. ."5 Dýrið í mann- inum er fyrir Þorgils tákn hins saklausa og eðlilega, sem verður sem þjófur, er fjömr er setmr á það. Hjónafjömrinn gerir mennina verri en þeir eru í rauninni. Þorgils hefur líka lausnina á takteinum, þá lausn, sem þau Þórarinn og Sigríður ætla að nota og brjóta ísinn: „ „Frelsi, sem allra mest frelsi; öll ánauð bara spillir og fordjarfar; það er nú gefið. Taka Gleipnir burt, svo ekki kyrki hann lengur; með guðlegum ljóma og glansa, hann verður nú annars bráðum að hræfareldi held ég. ■— Samningar, eða „republik" til reynslu, verra verður það hreint ekki, ég hef trú á samning- unum, þeir finnast mér so eðlilegir á þessari samninga öld — bara fara varlega, ekkert ævi- langt samningsband, og þá geta náttúrlega fjöldamargir samningar staðið til dauðans." "6 1 Gamalt og nýtt, bls. 26. 2 Gamalt og nýtt, bls. 93. 3 Gamalt og nýtt, bls. 123. 4 Gamalt og nýtt, bls. 123. 5 Gamalt og nýtt, bls. 124-—-125. 6 Gamalt og nýtt, bls.125—126.

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.