Mímir - 01.05.1972, Side 38

Mímir - 01.05.1972, Side 38
fjarlægjast meir og meir Farísea og Jesúíta."1 Fulltrúi hræsninnar er sr. Guðni og með hon- um allur almenningur. Sr. Guðni er trúlaus, en vill ekki láta það vitnast af hræðslu við hneyksli. Af sömu ástæðum heldur hann í Sig- ríði. Víða í sögum Þorgils bregður því viðhorfi við, að prestar séu hinar verstu mannverur, án þess að þeir séu nokkuð kynntir, og einnig afkvæmi þeirra. Þorgils nægir að segja um Þór- unni, sem fékk mikinn þokka á sr. Guðna, að „— hún var dóttir séra Sigfúsar skalla -—"2 Þessi lýsing á að nægja lesendum til skilnings á persónunni Þórunni og viðhorfum hennar. Hún var prestsdóttir. Aþekk lýsing kemur fram í Séra Sölvi: „En móðir hans var prestsdóttir, — það gerði strikið í reikninginn —"3 En af hverju bitna syndir feðranna svo á börnunum? Hið náttúrufræðilega viðhorf seinni hluta 19- aldarinnar, sem fyrr var getið, leiddi það af sér, að litið var á manninn sem afkvæmi vissra erfðaeiginleika í vissu umhverfi. Fólk er ekki lengur ábyrgt gerða sinna einungis fyrirsjálfusér, heldur og fyrir afkomendum sínum. Björnstjerne Björnson grípur þetta viðhorf á lofti og skrifar ættarsögur til að sýna erfðaeiginleika, sem ganga í ættir. I sögunni Pá Guds veje segir frá Ren- dalen, sem ekki þorði að kvænast vegna ættar- fylgjunnar, geðveikinnar. Greinilegt er, að Þorgils hefur haft kynni sín af þessu hjá Björnson, enda talar hann um kynspillingarskoðun Björnsons. „Sigríður vafði barnið að sér og það starði bláu augunum stöð- ugt á hana. Kynspillingarskoðun Björnsons flaug eins og elding í hjarta hennar. — O, þessi arfur, en séra Brandur hefur verið reglu- maður og pabbi svo hraustur og kjarkmikill.. ,"4 Persónumar. Er litið er á ytri lýsingar persónanna í Gamalt og nýtt, kemur merkilegt ósamræmi í ljós. Höfundurinn sjálfur lýsir þeim séra Guðna og Þórarni beinni lýsingu, mjög langri, en ytra útliti Sigríðar, aðalpersónu verksins, er hvergi lýst í heild, heldur kynnist lesandinn því við ýmsar aðstæður og atvik í sögunni: „. . litlu hvítu hendurnar hennar lukmst titrandi í stóru sterklegu höndunum hans: gráu augun með móleita kembingnum í.. ,"5 og „ „En hvað ég vildi segja, hvernig líst þér á brúðina, er hún ekki nógu helvíti lagleg og settleg..." "6 E. t. v. á þetta ósamræmi í ytri lýsingu persón- anna rót sína að rekja til þess, að útlit þeirra Guðna og Þórarins er táknrænt (symbolskt) fyrir persónuleika þeirra. Lýsing séra Guðna er táknræn fyrir hinn lítilsiglda mann. Hann var „prýðis laglegur og snyrtilegur maður og lipur- legur í framgöngu. Hann var hár meðalmaður, liðlega vaxinn, hvatlegur á velli og bar sig vel; ljósjarpur á hár og fremur þunnhærður, hárið fór slétt og vel, hárkamburinn yfir enninu reis snoturlega, og ævinlega eins; ennið var meðal hátt, nefið fremur stórt, víðar nasir en nokkuð mjótt á milli augnanna, þessara grábláu augna, sem litu svo skýrt og hreint upp. Efrivararskegg- ið þunnt, mjúkt og gljástrokið, ekki snefill af uppreist orðin til í því."7 A öðrum stað í ritgerðinni er þess getið, að bæði Þorgils og Gestur Pálsson eigna lítilmenn- inu frítt útlit. Hár og skegg séra Guðna er tákn persónuleikans. Benda má á, að lýsing Alex- anders Kiellands á Alphonse í sögunni To Venn- er er á sama hátt táknræn: „... og hans blöde, halvkröllede Haar saa ud som om det var bleven ordnet skjödelöst eller derangeret med Omhu af en koket Damehaand."8 Lýsing Þorgils á ytra útliti Þórarins er tákn- ræn fyrir hinn sterka einstakling, uppreisnar- manninn: „Þórarinn var hár maður og herði- breiður, allra manna vörpulegastur, dökkjarpur 1 Gamalt og nýtt, bls. 156. 2 Gamalt og nýtt, bls. 29. 3 Ofan úr sveitum bls. 11. 4 Gamalt og nýtt, bls. 110. 5 Gamalt og nýtt, bls. 100. 6 Gamalt og nýtt, bls. 26. 7 Gamalt og nýtt, bls. 24. 8 A. Kielland, Novelletter, Kbh. 1881, bls. 90. 38

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.