Bergmál - 05.01.1954, Síða 12

Bergmál - 05.01.1954, Síða 12
„Það bíða vor örlög, sem óráðnar gátur,“ segja sumir, en aðrir laga örlögin í hendi sér, og Gabriel var ein- mitt einn þeirra, sem ekki láta sér allt fyrir brjósti brenna. HARÐNESKJUKARL Saga eftir David Walker Gabriel dró fljótabátinn sinn á þurrt. Það var ennþá hljómur fyrir eyrum hans eftir mótor- skellina og kannski þó mest vegna þess, að honum hafði ekki komið dúr á auga síðastliðna þrjá sólarhringa. Hann hafði hraðað för sinni hingað, sem mest hann mátti, en nú, er hann var kominn á ákvörðunarstað, virtist hann ekki vera neitt að flýta sér. Hann stóð á fljóts- bakkanum. Nú myndi hann sjá fólk á ný og tala við fólk, segja því allt, sem á dagana hefði réttar tvö hundruð krónur fram úr áætlun. Varð því fjögur hundruð krónu tap á skemmtuninni. Hve margir voru félagsmenn? Sendið lausnir á verðlaunaheila- heilabrotinu til Bergmálsútgáfunnar fyrir 25. janúar n.k. Verðlaun: Ársáskrift Bergmáls. drifið — og hann myndi hitta Mörtu. — Mörtu. — Einn ellihrumur Indíáni sat á bakkanum fyrir ofan hann og starði út á fljótið. Hann leit ekki á Gabriel. Þeir voru þarna að- eins tveir, gamli Indíáninn og Gabriel, klukkan átta, á fögr- um sumarmorgni. Allt var kyrrt og hljótt, jafnvel moskitóflug- urnar héldu kyrru fyrir. Aðeins gamli Indíáninn, Gabriel og fljótið, það var allt. Hann rakaði sig og þvoði sér því næst úr brúnleitu vatninu, klæddist hreinni skyrtu, drakk síðustu dreggjarnar af teinu sínu, gleypti í sig nokkra munn- bita af kjöti, greiddi svarta hár- lubbann, tók upp dálítinn bögg- ul og breiddi yfir dótið, sem eft- ir var í bátnum og lagði af stað upp brattann með böggulinn sinn á bakinu. Sennilega hefir 10

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.