Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 13
1954
klukkan verið farin að halla í
níu. Gatan var hál af regnvatni,
varðhundarnir lágu sneypuleg-
ir fram á lappir sínar, fólk var
ekki komið á fætur.
„Sæli-nú,“ kallaði hann til
gamla Indíánans.
Gamli Indíáninn rumdi, lyfti
vinstri hönd og horfði á fljótið.
Er Gabriel hafði klifið upp
brattann, varð Brand liðþjálfi
fyrstur manna á vegi hans.
Hann varð glaður við að siá
Brand. Síðastliðið ár var gleymt.
„Sæll, liðþjálfi,“ sagði hann
og brosti.
„Sæll, Gabriel,“ sagði Brand
liðþjálfi. Hann var hár maður.
Hann brosti svolítið. „Hvenær
komst þú?“
„Ég var að koma. Var þrjá
sólarhringa á leiðinni. Vildi ná
hingað fyrir páska. Skildi hund-
ana mína eftir hjá Bob Starkey.
Hvað er að frétta héðan? —
Hvernig hefir konan yðar það?“
„Hún hefir það ágætt, þakka
þér fyrir,“ sagði liðþjálfinn.
„Gekk þér sæmilega?“ hann
kinkaði kolli í áttina að loð-
skinnabögglinum.
„Já, mjög sæmilega. Skinn af
bjórum og fáeinum mörðum.
Bob sagði mér, að þeir gæfu
sextíu fyrir mörðinn úti í Green
--------------------- Bergmál
Mountain. Það er ágætt verð.
Og ég fékk ...“
„Þeir gefa ekki sextíu hér.
Tuttugu væri nær lagi.“
Liðþjálfinn kinkaði kolli til
Gabriels í kveðjuskyni og gekk
áfram, en kallaði svo til hans
yfir öxl sér:
„Hve lengi hefir þú í hyggju
að dvelja hér núna, Gabriel?“
Gabriel yppti öxlum. „Ég veit
ekki, eina til tvær vikur að lík-
indum. Ég þarf að safna vistum
og útbúnaði. Hefi heldur ekkert
á móti því að sjá fólk, eftir heilt
ár þarna útfrá. Það vill verða
einmanalegt á stundum."
„Ég trúi,“ sagði liðþjálfinn og
horfði á Gabriel. Hann var harð-
ur í horn að taka, en góður mað-
ur. „Reyndu að sneyða hjá
vandræðum í þetta sinn, Gabri-
el,“ liðþjálfinn gekk á brott.
Á eftir var Gabriel svolítið
hryggur yfir marðar-verðinu og
líka því, sem liðþjálfinn hafði
sagt um vandræði, en það stóð
ekki lengi. Hann var glaður og
hamingjusamur yfir því að vera
kominn meðal manna á ný. Sjá
andlit og heyra raddir. Hann
hafði ekki séð annað en andlit
dýra og aðeins heyrt raddir
dýra, og hann hafði frá svo
mörgu að segja og þurfti að
— 11