Bergmál - 05.01.1954, Síða 14
B E R G M Á L
Þetta er mynd af þeim Richard
Burton og Jean Simmons í hlutverk-
um Marcellusar og Diönu í kvikmynd-
inni „Rauði kyrtillinn", sem er fyrsta
Cinema Scope kvikmynd, sem gerð
hefir verið og sýnd er á breiðtjaldi,
Kvikmynd þessi náði feikna vinsæld-
um í Ameríku og keppptust gagnrýn-
endur við að hlaða lofi á hana, bæði
fyrir undurfagra liti og óvenju falleg-
an hljóm, en hljóm-upptakan er nokk-
uð með öðrum hætti en í venjulegum
kvikmyndum. Leikur höfuðpersón-
anna, sem sjást á meðfylgjandi mynd,
var og talinn afburða góður. — Sagt
er að sýningar á myndinni í Ameríku
hafi gefið framleiðendunum 316 þús-
und dollara fyrstu vikuna — en kostn-
aður við gerð myndarinnar var sagð-.
ur 5 milljónir dollara, og er þó gert
ráð fyrir að myndin gefi þá upphæð
margfalda, jafnvel á tiltölulega stutt-
um tíma.
heyra oð sjá svo margt, áður en
hann færi út eftir aftur.
Hann gekk áfram. Næsti mað-
____________________ JANÚAR
ur, sem hann sá, var séra Tinet.
Hann var að vinna í garðinum
sínum og bauð Gabriel velkom-
inn, énda hafði hann skírt hann
á sínum tíma.
„Gabriel, vinur minn,“ sagði
hann, „hefir þú beðið til Himna-
föðurins til þess þú öðlaðist
sálarró?11
„Á hverjum degi, Faðir,“
svaraði Gabriel, stuttu síðar
hélt hann áfram. Þá sá hann
Mörtu, en hún var sú, sem hann
hafði hugsað mest um á löngum
nóttum í skógarkofa sínum, og
á göngu sinni.
Marta var ári eldri nú, en síð-
ast er þau sáust, og hún hafði
þroskast mikið og fegurð henn-
ar var meir áberandi en nokkru
sinni.
Hann varð máttlaus í hnjálið-
unum er hann sá Mörtu. Hár
.hennar var slegið og roða sló á
kinnar hennar. Hún var dekkri
á hörund heldur en Gabriel.
Faðir Gabriels hafði verið
hvítur maður og móðir hans,
fjalla-Indíáni, svo að hann var
kynblendingur líka. — Hann
gladdist í hjarta sínu yfir því,
að hann skyldi hafa þvegið sér
og greitt hár sitt, og rakað sig.
„Halló! Marta,“ sagði hann og
brosti við henni.
„Halló! Gabriel.“ Hún brosti
12