Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 17
B E R G M Á L
1 954 -------------------------
Herra Johnson starði á Gabri-
el. „Þú getur farið eitthvað ann-
að með þau, ef þér sýnist,“ sagði
hann.
„Hvert annað, herra John-
son?“
„Gabriel, vinur minn, hefir
þú beðið til Himnaföðurins til
þess þú öðlist sálarró? — Á
hverjum degi, Faðir.“
Hversu mikið myndi það
kosta, að ferðast eitt hundrað og
fimmtíu mílur til þess að geta
selt á betra verði?
„Ég skal hækka mig Upp í
eitt hundrað og áttatíu,“ sagði
herra Johnson. Hann kveikti í
cigarettu. „Meira get ég ekki gef-
ið. Þú segir til, hvort þú gengur
að því.“
„Ég geng að því,“ sagði Ga-
briel. Hann gekk til dyranna.
— Þorpari, — hugsaði hann.
„Svindl,“ muldraði hann.
„Ég kem eftir andartak,“ kall-
aði herra Johnson á eftir hon-
um. Og svo, þegar Gabriel var
að fara út úr búðinni, heyrði
hann kaupmanninn segja við
aðstoðarsveininn: „Taktu vel
eftir þessum. Þetta er harð-
neskjukarl. í fyrra sumar ...“
Gabriel keypti það, sem hann
vanhagaði mest um í svipinn.
Síðan brá hann sér, sem snöggv-
ast inn í kirkjuna og baðst fyrir.
Hvelfing kirkjunnar var blá
með gylltum stjörnum. Mynd-
irnar voru mjög fallegar, og
Kristur var hvítur maður.
Því næSt heimsótti hann
skógarvörðinn til að endurnýja
veiðileyfi sitt.
Skógarvörðurinn var á sama
aldri og Gabriel. Hann bauð upp
á kaffibolla og rabbaði við
Gabriel um landið norður frá,
því að hann hafði komið þar og
skildi því Gabriel betur en
margir aðrir.
Gabriel heimsótti næst móð-
urbróður sinn, sem var eini ætt-
ingi hans þarna. Hann var Indí-
áni í húð og hár, svo að Gabriel
gat ekki talað við hann um neitt
annað en veiðarnar, en hann
þráði einmitt að tala um allt
annað milli himins og jarðar.
Þegar Gabriel fór þaðan,
gekk hann fram hjá húsi for-
eldra Mörtu, en hún sázt hvergi.
Hann kynti því varðeld og lagð-
ist til svefns við hliðina á fljóta-
bátnum sínum. Hann svaf fram
undir miðnætti, þá var kominn
tími til að fara á dansleikinn.
Gabriel smeygði sér í gegn um
hópinn, sem stóð við dyr sam-
komuhússins. Hann þekkti alla,
sem þarna voru, en enga vini
átti hann í hópnum. Flestir viku
15