Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 18
B E R G M Á L
JANÚAR
til hliðar, er þeir komu auga á
Gabriel.
Inni í horni á danssalnum stóð
Albert fiðlari og spilaði. Hann
barði taktinn með fætinum. All-
ir börðu taktinn með fætinum.
Gabriel gerði það líka. Dansinn
seyddi hann og laðaði. Fiðlu-
leikurinn endurómaði í fótum
hans og handleggjum, lærun-
um og maganum.
Marta var að dansa við skóg-
arvörðinn. Hvers vegna endi-
lega við hann. Nú — hún varð
auðvitað að dansa við einhvern.
Hún var í ljósbláum kjól, með
blátt band yfir hárið. Hún
horfðist í augu við skógarvörð-
inn og snarsnerist á gólfinu, þau
færðust inn í horn, komu aftur
fram undir dyr og dönsuðu og
dönsuðu og dönsuðu.
Loks varð hlé á dansinum.
Gabriel gekk í áttina til Mörtu.
Hún var heit og rjóð, berir fæt-
ur hennar voru stæltir og sterk-
legir, pilsið flaksaðist til. Skóg-
arvörðurinn hélt um handlegg
hennar. Hann var að leiða hana
til sætis.
„Marta,“ sagði Gabriel.
Hún sneri sér að honum. „Gott
kvöld, Gabriel,11 sagði hún.
Skógarvörðurinn sleppti ekki
handlegg hennar. Hún brosti
ekki til Gabriels og skógarvörð-
urinn virtist ekki muna það, að
hann hafði boðið upp á kaffi.
„Má ég biðja um næsta dans,
Marta?“ Hann vissi að hún hafði
gaman af að dansa við hann.
Því að Gabriel og Marta áttu
saman í dansinum eins og ljóð
og lag. Dans þeirra var eins og
þrumuveður úti á fljótinu. Þá
voru aðeins þau tvö til.
„Því miður,“ svaraði hún, „ég
hefi lofað næsta dansi.“ Augu
hennar hvörfluðu frá Gabriel til
skógarvarðarins.
„En þar næsta dans, þá,“ hélt
Gabriel áfram.. Skógarvörður-
inn hleypti brúnum og leiddi
Mörtu til sætis, svo að Gabriel
fékk ekkert svar. Hann starði á
eftir þeim. Hendur hans kreppt-
ust. Hann titraði frá hvirfli til
ilja. Það varð dauðaþögn í saln-
um andartak.
„Marta,“ sagði Gabriel, eða
hann ætlaði að minnsta kosti
aðeins að segja það, en hann
hrópaði það.
Hann fann, að tekið var um
handlegg hans ofan við oln-
boga. „Komdu með mér út fyr-
ir,“ sagði Brand liðþjálfi. „Þetta
er fyrsta kvöldið, sem þú ert
heima, en samt ætlar þú strax
að stofna til vandræða,“ hélt
16