Bergmál - 05.01.1954, Síða 19
1 9 5 4 ------------------------
Brand áfram, er þeir komu út
úr samkomuhúsinu.
„Ég gerði ekkert, liðþjálfi. —
Ekkert annað en biðja Mörtu um
næsta dans.“
„Hefir enginn sagt þér frá því,
að þau ætla að gifta sig í næstu
viku. Sáztu ekki trúlofunar-
hringinn hennar Mörtu.“
„Nei,“ svaraði Gabriel.
Þeir stóðu þögulir nokkra
stund.---------
„Hve langan tíma þarft þú til
að útbúa þig í næstu veiðiför?“
spurði liðþjálfinn að lokum.
„Sennilega tvo til þrjá daga,“
sagði Gabriel.
„Mér þykir þetta leitt, þín
vegna, Gabriel. Þú ert afburða
veiðimaður og heiðvirður dreng-
skaparmaður. — En þú átt ekki
vel heima innan um annað
fólk.“
Gabriel gekk á brott. Hann
settist við hliðina á fljótabátn-
um sínum og sat þar alla nótt-
ina án þess honum kæmi dúr á
auga.
Gabriel fór að ábendingu lið-
þjálfans. Hann verzlaði frið-
samlega við herra Johnson, og
að kvöldi annars dags var hann
ferðbúinn. Litli fljótabáturinn
hans var hlaðinn. Gabriel batt
hann við tré á bak við eyrar-
------------------ Bergmál
odda, þar sem hann sázt ekki
frá þorpinu.
Þessa tvo daga hafði Gabriel
forðast umgengni við fólkið og
sofið mikið. Kvöldið, sem hann
var ferðbúinn og búinn að binda
bátinn, fór hann og faldi sig í
þéttu skógarkjarri, rétt hjá göt-
unni, sem flestir þorpsbúar
gengu eftir. Það var komið fram
yfir miðnætti, þegar Marta
kom. Hún gekk álút og lék bros
um varir hennar. Hún var alein.
Hann lét hana ganga fram
hjá sér, en stökk svo skyndilega
út úr kjarrinu og kom leiftur-
snöggt aftan að henni, greip
fyrir munn henni og hóf hana
á loft. Hún veitti öfluga mót-
spyrnu og gerði honum erfitt
fyrir á meðan hann bar hana
gegn um ógreiðfæran skóginn,
alla leið niður að fljótinu og út
í bátinn.
„Vertu róleg, Marta,“ sagði
Gabriel blíðlega um leið og
hann lagði hana í botn bátsins.
Hann ýtti frá landi og reri af
stað. Marta æpti. Hann sló hana
kinnhest með flötum lófa hægri
handar. Hún þagnaði og sat í
hnipri. Hann setti utanborðs-
mótorinn í gang og hávaðinn í
honum mundi kæfa öll óp. Þetta
eina óp gat alveg eins hafa ver-
ið frá einhverju dýri,
17