Bergmál - 05.01.1954, Síða 20

Bergmál - 05.01.1954, Síða 20
Bergmál ---------------------- Garbiel hélt sig sem næst öðrum bakka Mackenzie-fljóts- ins. Hann leit til baka að hálf- tíma liðnum, en hvergi sázt nein hreyfing. Fljótið beygði til hægri, til norðurs. Sólin kom upp, það var svalt. Hann tók fram værðarvoð og vafði henni utan um Mörtu, sem sat móti sól. „Mér þykir fyrir þessu, Marta. Mér þykir það mjög leitt, ef ég hefi meitt þig. Ég myndi aldrei meiða þig, viljandi.“ Hún starði á hann. „Þú ert orðinn brjálaður.“ Hún var hrædd við hann. Hvers vegna voru allir hræddir við hann, jafnvel Marta? „Er það brjálæði að elska þig?“ „Það er brjálæði að nema mig svona á brott. Þeir ná þér.“ „Nei,“ sagði Gabriel. Hann hló skyndilega. Nú var hann hamingjusamur. Hún var hjá honum. „Þeir finna okkur aldrei, vegna þess að þeir hafa ekki hugmynd um það, hvert við förum.“ Svo sagði hann henni frá landinu, sem þau voru að fara til. Landi móðurfrænda hans, þar sem hann hafði verið í æsku. Hann hélt áfram alla nóttina að ___________________. JANÚAR segja henni frá MacKenzie fjöllunum, héraðinu, sem nú var í eyði og var svo langt í burtu, að jafnvel veiðimenn höfðu ekki stigið þar fæti sínum, síðast lið- in fimmtán ár. Marta hlustaði á hinn sterka og karlmannlega róm Gabriels, sem yfirgnæfði alltaf árniðinn, jafnvel þar sem flúðir og þrengsli urðu á vegi þeirra. Ef til vill hefir hún blundað öðru hverju. Hann vissi það ekki. Hann vonaði, að hún væri ekki lengur hrædd við hann. „Vertu ekki hrædd við mig, Marta,“ bað hann. Hún hreyfði sig svolítið. Kannski hafði hún þá alls ekki sofið. Hann beygði til vinstri út af MacKenzie fljótinu og upp eftir minna fljóti. Brátt komu þau að fyrsta farartálmanum. Þau urðu að bera bátinn og allan farang- ur yfir að næsta fljóti. Hann lét Mörtu ganga á undan og bera tuttugu lítra kút með mótor- olíu. Það var hæfileg byrði fyr- ir konu. Hann vissi, að hún myndi ekki reyna að strjúka á brott frá honum, nema því aðeins, að hún næði bátnum, en hann bar báða rifflana sína sjálfur, svo að freistingin yrði ekki á vegi hennar. Hún reyndist auðsveip. 18

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.